Skinfaxi - 01.04.1949, Page 11
SKINFAXf 11
Leikfimi kvenna (um 1000 þátttakendur).
stjórnendur hafa i'engizl að, en þeir eru mjög margir.
Menntun fræðsluliringaleiStoga er því mikiS vanda-.
mál. Þess vegna halda ýmis félagasambönd nám-
skeið fyrir slíka forstöðumenn. Þar fá margir menn
fræðslu, einkum í þeim efnum, sem Iiverju sinni eru
mest tekin til meðferðar í fræðsluhringunum. Áhugi
fyrir þjóðfélagsmálum er t. d. mjög mikil nit. Þetta
er og eðlilegt þar sem allir þeir sem orðnir eru 21 árs
hafa atkvæðisrétt i héruðum og til þingsins.
Mjög er um það rætt hversu það megi takast að
jafna menningarskilyrði fólks i þéttbýli og dreifbýli.
Hin margvíslegu skilyrði, sem þéttbýlið getur boðið,
hefur leitt lil þess að flótti fólks þangað hefur verið
mjög mikill i seinni tið og samhliða Ifefur flóttinn
verið áberandi frá landbúnaðarstörfum yfir lil ann-
arra atvinnuvega. Hefur þetta auðvilað aukið á fyrr-
nefnd IiúsnæðisvandræSi. Vegna þessa eru uppi fyr-
irætlanir um að bæta uppeld.isskilyrði unglinga til
sveita. Þegar njr skólahús eru reist, er keppt að því
að i þehn séu einnig vistarverur fyrir félagsstarfsemi.