Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.04.1949, Page 54

Skinfaxi - 01.04.1949, Page 54
54 SKINFAXl stökk. Reynið að hlaupa eðlilega yfir rárnar. Hækkið síðan rárnar og lyftið hné aftari fótar út á við, er þið farið yfir, cn hlaupið eftir sem áður. 2. Teygjur, sem sérstaklega teygja þau liðabönd og vöðva, sem nauðsynlegt er að séu eftirgefanlegir i grindahlaupi. a. Leggið fremri fótinn upp á grindina eða áhaldið (t. d. liest, kistu) og teygið síðan með því að beygja bolinn áfram. b. Leggið hné aftari fótar upp á grindina (áhaldið) og teygið síðan, með þvi að beygja ykkur áfram og teygja hendurnar niður að jörð (gólfinu). 3. Stígið fæti upp og fram fyrir grindina sem líkast og í sjálfu hlaupinu. Setjið fótinn niður hálfan metra iraman og örlítið utan við grindina, dragið síðan aftari fótinn mcð hogið hné fram yfir grindina, lyfti'ð hnénu liátt upp og fram og takið fullkomið skref með þeim fæti. 4. Sama æfing yfir nokkrar grindur með ca. 1,5 m millibili. 5. Standið með hægra fótinn á lofti yfir grindinni (grindin ekki í fullri hæð). Spyrnið frá með aftari fæti, dragið fót- inn með hnéð á undan yfir grindina, Iyftið hnénu hátt upp og fram sem i venjulegu hlaupi. Þessi æfing gerist þannig að haldið er áfram og hlaupin nokkur skref á eftir. Beygið ekki bolinn mikið áfram. C. Hlaupið yfir nokkrar grindur, fimm eða fleiri skref tekin milli grindanna. Hlaupið liægt og lyftið hnjánum hátt. Reynið að hafa fótaskiptinguna snögga i skrefinu yfir grindina. 7. Hlaupið yfir grindurnar og takið þrjú skref milli þeirra. Styttra bil milli grindanna cn löglegt er, sömuleiðis frá viðbragðslínunni að fyrstu grindinni. Standandi viðhragð. 8. Hlaupið yfir grindúrnar méð t. d. 8 m milli fyrstu og ann- arrar, 8,5 m milli annarrar og þriðju, 9 m milli þriðju og fjórðu og 9,14 milli fjórðu og fimmtu grindar. Þrjú skref tekin milli grindanna. 9. Viðbragðsæfing og hlaupið yfir 2 grindur. 10. Grindahlaup yfir fimm grindur með löglegu millibili. 11. Öll vegalengdin hlaupin. Þjálfun. Þjálfun undir 110 m grindalilaup verður fyrst og fremst að miðast við að auka spretthraðann og laga tækni lilauparans i skrefinu yfir grindurnar. í því felst að vera sem skemmstan tima i loftinu og koma niður í éðlilega spretthlaupastöðu. í

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.