Skinfaxi - 01.04.1949, Qupperneq 54
54
SKINFAXl
stökk. Reynið að hlaupa eðlilega yfir rárnar. Hækkið síðan
rárnar og lyftið hné aftari fótar út á við, er þið farið
yfir, cn hlaupið eftir sem áður.
2. Teygjur, sem sérstaklega teygja þau liðabönd og vöðva,
sem nauðsynlegt er að séu eftirgefanlegir i grindahlaupi.
a. Leggið fremri fótinn upp á grindina eða áhaldið (t. d.
liest, kistu) og teygið síðan með því að beygja bolinn
áfram.
b. Leggið hné aftari fótar upp á grindina (áhaldið) og
teygið síðan, með þvi að beygja ykkur áfram og teygja
hendurnar niður að jörð (gólfinu).
3. Stígið fæti upp og fram fyrir grindina sem líkast og í
sjálfu hlaupinu. Setjið fótinn niður hálfan metra iraman
og örlítið utan við grindina, dragið síðan aftari fótinn
mcð hogið hné fram yfir grindina, lyfti'ð hnénu liátt upp
og fram og takið fullkomið skref með þeim fæti.
4. Sama æfing yfir nokkrar grindur með ca. 1,5 m millibili.
5. Standið með hægra fótinn á lofti yfir grindinni (grindin
ekki í fullri hæð). Spyrnið frá með aftari fæti, dragið fót-
inn með hnéð á undan yfir grindina, Iyftið hnénu hátt
upp og fram sem i venjulegu hlaupi. Þessi æfing gerist
þannig að haldið er áfram og hlaupin nokkur skref á
eftir. Beygið ekki bolinn mikið áfram.
C. Hlaupið yfir nokkrar grindur, fimm eða fleiri skref tekin
milli grindanna. Hlaupið liægt og lyftið hnjánum hátt.
Reynið að hafa fótaskiptinguna snögga i skrefinu yfir
grindina.
7. Hlaupið yfir grindurnar og takið þrjú skref milli þeirra.
Styttra bil milli grindanna cn löglegt er, sömuleiðis frá
viðbragðslínunni að fyrstu grindinni. Standandi viðhragð.
8. Hlaupið yfir grindúrnar méð t. d. 8 m milli fyrstu og ann-
arrar, 8,5 m milli annarrar og þriðju, 9 m milli þriðju
og fjórðu og 9,14 milli fjórðu og fimmtu grindar. Þrjú
skref tekin milli grindanna.
9. Viðbragðsæfing og hlaupið yfir 2 grindur.
10. Grindahlaup yfir fimm grindur með löglegu millibili.
11. Öll vegalengdin hlaupin.
Þjálfun.
Þjálfun undir 110 m grindalilaup verður fyrst og fremst að
miðast við að auka spretthraðann og laga tækni lilauparans
i skrefinu yfir grindurnar. í því felst að vera sem skemmstan
tima i loftinu og koma niður í éðlilega spretthlaupastöðu. í