Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 109
sumar jafnvel mjög vel. Fyrst og frenrst er
það að þakka leiðsögumönnunum, sem að
vanda hafa undirbúið ferðirnar vel og lagt sig
í líma unr fræðsluna, þó allt vinni þeir þetta í
sjálfboðavinnu. Kann félagið þeim hugheilar
þakkir fyrir. Drjúgan þátt í þessum góðu
ferðum eiga einnig bílstjórarnir hjá Guð-
mundi Jónassyni, sem með lipurð og útsjón
liafa jafnan skilað ferðalöngunum á réttan
stað á réttum líma. Eiga þeir lilýjar þakkir
félagsins skildar. Þakkir eiga einnig skildar
þeir mörgu sem hafa tekið á móti og hýst
þátttakendur í ferðum þessum, en ekki síst
eru þessar góðu ferðir þátttakendum sjálfum
að þakka, senr hafa gert þær sérlega ánægju-
legar með glaðværð sinni og áhuga.
Fuglaskoðun á Reykjanesi
Farin var fuglaskoðunarferð suður á Reykja-
nesskaga laugardaginn 14. maí, í samvinnu
við FÍ, með Ieiðsögn hinna ágætu leiðsögu-
manna Gunnlaugs Péturssonar og Gunnlaugs
Þráinssonar. Farið varfrá Umferðarmiðstöð-
inni um kl. 10 og komið aftur undir kvöld.
Veður var fremur svalt en þurrt, bjart og
sólríkt. Fyrst var skoðað fuglalífið í Vatns-
mýrinni og á Álftanesi við Bessastaði. Síðan
var ekið suður á Suðurnes og hugað að
fuglalífi á Njarðvíkurfitjum, í Garðinum, við
Garðskagavita og við Sandgerðishöfn. Þaðan
var farið suður um Hafnir og lilið til
bjargfuglanna í Hafnarbergi en þaðan aftur til
Reykjavíkur. Ferðin tókst ágætlega vel, en
þátttakendur voru 35. FÍ sá um fararstjórn.
Iarðfræðiskoðun á Reykjanesi
Jarðfræðiskoðunarferð var farin út á Reykja-
nes í samvinnu við FÍ laugardaginn 28. maí.
Leiðsögumenn voru jarðfræðingarnir Sig-
mundur Einarsson og Magnús Sigurgeirsson
og sáu þeir einnig um fararstjórn. Lagt var
upp frá Umferðarmiðstöðinni um kl. 10 og
komið aftur undir kvöld. Veður var svalt og
skýjað þegar upp var lagl en kyrrt og brá til
sólar á nesinu. Skoðaðar voru einkum gos-
menjar frá sögulegum tíma, öskugígur á
Reykjanestá, Stampahraun og önnur söguleg
liraun og eldstöðvar. Þátltakendur voru 15.
Umhverfisskoðun
Umhverfisskoðunarferð var farin laugardag-
inn 11. júní. Lagt var upp frá Umferðar-
miðstöðinni um kl. 13 og farið fyrst að
vatnsbólum Reykjavíkur hjá Gvendarbrunn-
um. Þar tók Guðmundur Jónsson, stöðvar-
stjóri hjá vatnsveitunni, á móti hópnum í
hinu glæsilega brunnhúsi veitunnar og kynnti
l'yrir honum sögu og rekstur vatnsveitunnar.
Þaðan var farið um Sandskeið og upp í
Bláfjöll, þar sem gert var kaffthlé við þjón-
ustumiðstöðina. Skýjað var þar efra, regnúði
og skyggnislítið. Úr Bláfjöllum var ekið út
með fjöllum, staðnæmst á Undirhlíðum og
litið á efnisnám, vatnsverndarsvæði og gíga-
raðir. Þaðan var farið út að Vatnsskarði, litið
á fleiri efnisnám og gengið á Fjallið eina, en
af því er merkilega mikið útsýni. Veður var
þar orðið skaplegt. Aftur til Reykjavíkur var
komið um kl. 18. Leiðsögumenn og farar-
stjórar voru Freysteinn Sigurðsson og Gutt-
ormur Sigbjarnarson. Þátttakendur voru 13
talsins.
SÓLSTÖÐUFERÐ í DaLI
Helgina 25. og 26. júní varfarin sólstöðuferð
vestur í Dali og Saurbæ. Leiðsögumenn voru
Karl Gunnarsson þörungafræðingur og
Hreggviður Norðdahl jarðfræðingur. Lagt
var upp frá Umferðarmiðstöðinni kl. 9 á
laugardag, 25. júní, og farið þann dag vestur
að Laugum í Sælingsdal, þar sem gist var.
Veður var svalt þennan dag og norðaustan-
gjóla. Bjart var sunnan Snæfellsness en
skýjað norðan þess og heldur hvassara.
Staldrað var á jökulgörðunum við Fiskilæk í
Melasveit og áfangi gerður í Borgarnesi.
Hádegishlé var gert við gígana í Rauð-
hálsahrauni, en gosstöðin er talin vera frá
sögulegum tíma og sú sem getið er í sýn Sel-
Þóris f Landnáinu. Þaðan var farið norður
Heydal, ekið inn með Hvammsfirði og
staldrað á Kambsnesi. Þar var litið á malar-
hjalla frá ísaldarlokum og skyggnst yfir
Hvammsfjörð. Ekið var svo inn á Laxárdal
og skoðaðar jökulmenjar í bökkum Laxár.
Þar var svo gert kaffihlé en áfangi í Búðardal.
Utan við ána Fáskrúð var farið niður á ljöru
og skoðaður fjörugróður, einkum þang og
þari. Komið var um kl. 19 að Laugum og gisl
þar um nóttina.
Sunnudaginn 26. júní var lagt upp frá
Laugum um kl. H) og stel'nt úl á Meðal-
fellsströnd. Veður var ágætt, lofthiti yfir
10°C þegar á daginn leið, hæg norðaustanátt,
217