Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 62
í bringu. Á vissum hluta vegarins var verið að
gera við hann og sátu með vissu millibili menn
á vegarbrúninni við að mylja grjót. Til skjóls
fyrir vindi og sól hafði hver verkamaður
mottu, er sett var upp í hálfhring og sáu þeir
því ekkert frá sér nema spotta niðureftir
veginum, en hvorki til hægri né vinstri handar.
Þeir ugðu ekki að sér þegar þessi „rogue” kom
út úr skóginum, sem var þar í nánd, og greip
fyrsta manninn, sem varð hans ekki var vegna
mottunnar og hávaðans við grjótmulninginn.
Hann þreif veslings manninn hátt á loft með
rananum, slöngvaði honum á jörðina, svo að
varla hefir verið heilt bein í honum, en gerði
honum þó betri skil með löppunum. Þá fór
hann áfram eftir veginum, hundrað metrum
fjær kom hann að næsta verkamanni og fór
alveg eins með hann. Eins og áður er getið sáu
mennirnir ekkerl frá sér vegna mottunnar og
heyrðu ekkert vegna grjótmulningsins og því
tókst morðvarginum að drepa þarna 7 menn í
runu. Loks tóku bændur, sem voru langt þaðan
með uxakerrur á veginum, eftir þessu og gátu
með ópum og óhljóðum gert verkamönnum
þeim, sem dýrið hafði ekki enn náð til, aðvart
um hættuna. Bæði bændurnir og verkamenn-
irnir lögðu strax á flótta og komust undan dýr-
inu, það náði að eins kerrunum og uxunum,
steypti því öllu og hvarf svo inn í frum-
skóginn.” (Hagenbeck 1939, bls. 121 122.)
Hagenbeck tók svo þátt í aðför veiði-
manna að fílnum og felldi hann við annan
mann. Þeir voru hætt komnir þegar fíllinn
réðst særður á þá en hann datt niður dauður
áður en honum tókst að hafa skipti á hlut-
verkum veiðimanna og bráðar.
■ FÍLAR OG MENN
Fílaveiðar
Steinaldarmenn veiddu ffla til
matar og nýttu tennur þeirra og
húðir. Nú á dögum eru dýrin
nær eingöngu veidd vegna
skögultannanna, fflabeinsins.
Fílar eru hvarvetna alfriðaðir
en veiðiþjófar ganga víða nærri
stofnum þeirra, einkum í
Afríku. Öll verslun með fíla-
bein er ólögleg og talsvert
magn af löglega fengnu ffla-
beini liggur í geymslum í
170
Afríku. Lagt hefur verið til að sala á því
verði leyfð og takmörkuð veiði heimiluð á
afríkuffl gegn háu gjaldi. Fénu yrði varið
til verndar þeim fílum sem eftir lifðu.
Aðrir leggjast gegn þessum hugmyndum á
þeirri forsendu að þar með yrði erfitt að
koma í veg fyrir að illa fengið fílabein
væri boðið til sölu á löglegum markaði.
Brúkunarfílar
Fílar hafa frá fornu fari verið notaðir til
burðar og dráttar á Indlandi og í Burma,
þar sem þeir eru meðal annars látnir bera
boli af tekkviði og aðrar þungar byrðar.
Nú hafa þeir víða þokað fyrir vinnuvélum
en nýtast þó þar sem vélum verður ekki
við komið. Veiðimenn ferðuðust á fílsbaki
í opnum veiðikofum, howdah (4. mynd).
5. mynd. Mongólahöfðinginn Kublai Khan (1215-1294)
í timburkastala sem fjórir fílar bera. Myndin er úr bók
frá 1826. (Carrington 1958.)