Náttúrufræðingurinn - 1995, Blaðsíða 92
1. mynd. Megineldstöðvar og tilheyrandi sprungureinar í og
við norðurjaðar Vatnajökuls. - The central volcanoes and
their fissure swarms at the North border of Vatnajökull.
sprungureinum en ekki
einstökum eldstöðvum,
nema þau sem liggja
nokkuð utan þeirra. Að
vísu er hraunlagasyrp-
unni frá sprungureininni
sem liggur til suðsuð-
vesturs frá Dyngjufjöll-
um í gegnum Gígöldur
skipt í tvennt og er það
gert vegna hins mikla
eðlis-, útlits- og aldurs-
munar sem þar er, bæði
á hraunum og til-
heyrandi eldstöðvum.
Eldri syrpuna, sem á
uppruna í Gígöldum,
nefndum við Kreppu-
tunguhraun vegna út-
breiðslu hraunanna aust-
ur um alla Krepputungu,
en þá yngri nefndum við
Dyngjufjallahraun, en
uppruni þeirra hrauna er
aðallega í sjálfum
Dyngjufjöllum og Öskju.
2. mynd sýnir glögglega
útbreiðslu þessara hrauna á kortlagða
svæðinu, ásamt öðrum þeim hraunlaga-
syrpum sem þarna er að finna og nú verður
nánar vikið að.
■ KVERKFJALLAH RAUN
Kverkfjallahraun má nefna einu nafni öll
þau hraun sem runnið hafa frá sprungurein
Kverkfjallaeldstöðvarinnar. Mest er út-
breiðsla þeirra vestan undir Kverkfjalla-
rana þar sem þau þekja um 80 ferkílómetra
svæði (2. mynd). Þarna má aðgreina a.m.k.
fimm misgamla hraunstrauma frá jafn-
mörgum gossprungum en þær eru þó
líklega íleiri. Gossprungur þessar skerast á
milli 25° og 35°austan við norður í gegn-
um vestanverðan ranann þar sem gosefnin
þekja hann að meira eða minna leyti með
gjósku, gjalli og hraunum allt austur í
Hraundal, sem aðskilur Austur- og Vestur-
rana. Ein þeirra liggur til suðvesturs frá
Kverkhnjúkaskarði vestantil í undirhlíðum
ranans, og hafa hraunin frá henni runnið til
norðurs á milli Lindafjalla og Löngu-
hlíðar, þar sem þau hvíla ofan á Kreppu-
tunguhraunum. Hinar fjórar gossprung-
urnar liggja lengra lil suðvesturs og ná
alveg upp í hlíðar Kverkfjalla. Sú vestasta,
og líklega sú elsta þeirra, liggur um
Virkisfell og stendur hús Ferðafélagsins,
Sigurðarskáli, við einn gíginn á henni.
Hinar gossprungurnar liggja uppi á ranan-
um og í vesturhlíðum hans. Frá þeim hafa
runnið a.m.k. tveir hraunstraumar niður
eftir Hraundal og sá eldri þeirra hefur
runnið austur úr Kverkhnjúkaskarðinu og
allt austur að Hvannalindum.
Lindahraun við Hvannalindir og Kreppu-
hraun á austurbakka Kreppu tilheyra bæði
Kverkfjallahraunum. Það fyrrnefnda hefur
runnið frá um 3 km langri gossprungu í
stefnuna 32° austan við norður, er liggur
norður frá Svarthyrnu. Hraunstraumurinn
frá henni hefur runnið í mörgum kvíslum
200