Náttúrufræðingurinn

Volume

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 38

Náttúrufræðingurinn - 1997, Page 38
hans. Sú varð og raunin og reyndust Líbýumenn hinir samvinnufúsustu á allan hátt. En nú voru góð ráð dýr. Eina starfandi verksmiðjan í heiminum var í sameigin- legri eigu Mexíkó- og Bandaríkjamanna og staðsett í Tuxla í suðausturhluta Mexíkó. Flestir sérfræðingar í notkun SIT í viðureign við skrúfufluguna voru bandarískir, auk nokkurra mexíkanskra. Bandaríkjamönnum var þá bannað að ferðast til Líbýu og samskipti Ghaddafis og Líbýumanna við umheiminn voru ákaflega erfíð af ýmsum ástæðum (t.a.m. vegna loftárásar Bandaríkjamanna og Lockerby- slyssins). Höfundur fór ásamt öðrum til Washing- ton til að freista þess að fá Bandaríkja- menn til samstarfs. Það er til marks um góða eiginleika hjá mannkyninu að þegar alvarleg hætta, sem valdið getur ófyrir- sjáanlegu tjóni og þjáningum, steðjar að, gleymast allar erjur og óvinátta. Bæði þjóðþing Bandaríkjanna og George Bush forseti samþykktu nær umræðulaust að leyfa sölu flugna frá Tuxla-verksmiðjunni og að heimila bandarískum sérfræðingum að vinna við þetta verkefni í Líbýu. Reyndar var aldrei minnst á Libýu í þessu sambandi heldur einungis Norður-Afríku. Yfírmaður skordýradeildar okkar í Vín, dr. Donald Lindquist, fór til Líbýu og varð yfirmaður verkefnisins. Samningur var gerður við vöruflutningadeild Lufthansa um flutning á flugunum frá Mexíkó til Trípólí. Og brátt fóru að berast vikulega um 40 milljónir geldra flugna með hverri risaþotu, 1700 í hverjum pappakassa. Þeim var komið fyrir í kæligeymslum á flugvellinum í Trípólí og síðan var flogið þaðan á minni flugvélum og geldum flugum dreift á sýktu svæðin. Mikil áhersla var lögð á að fylgjast stöðugt með öllum skepnum á þessu stóra svæði. Alls var um ein milljón húsdýra skoðuð. Þegar hér var komið sögu voru tilfelli sýktra skepna orðin yfír 14.000 en Líbýu- menn voru hættir að gefa upp hve margt manna varð fyrir áreitni skrúfuflugunnar. Við höfðum heppnina með okkur. Veturinn 1990-1991 var óvenjukaldur þannig að tiltölulega fáar flugur munu hafa lifað hann af. Byrjað var að dreifa ófrjóu flugunum í desember 1990 og síðasta sárið af völdum skrúfuflugna fannst í skepnu í mars 1991! Til öryggis var þó haldið áfram að dreifa vikulega milljónum geldra flugna fram í október 1992 en þá var unnt að gefa út yfirlýsingu um að Líbýa og Afríka væru laus við skrúfufluguna. Við höfðum fengið vilyrði frá ýmsum ríkjum, sjóðum og stofnunum fyrir um 120 milljónum dollara til verkefnisins sem átti að taka tvö ár. Verkinu lauk hins vegar á 10 mánuðum og það kostaði rétt liðlega 50 milljónir dollara. ■ tsetse-flugur Tsetse-flugur, Glossina spp. eru land- lægar um alla Mið- og Suður-Afríku. Þær bera einfrumunginn Trypanosoma sem veldur hinni banvænu svefnsýki í mönnum og skyldum, jafnbanvænum sjúkdómi, „na- gana“, í skepnum. Óbeint valda þær því að milljónir hektara af góðu graslendi nýtast ekki til bútjárbeitar, og það meðal þjóða sem flestar þjást af matarskorti, einkum prótínskorti, sem harðast kemur niður á börnum. Á svæðum þar sem flugan er skæð er ekki einu sinni unnt að halda uppi ferðamannaþjónustu. Búið er að eyða miklum tíma og fjármunum og ótrúlegu magni af eiturefnum í að reyna að vinna bug á tsetse-flugum. Sums staðar hefur tekist að halda þeim í skefjum, a.m.k. tímabundið, en hvergi að útrýma þeim með eiturefnum til frambúðar. Tilraunir með að beita SlT-aðferð við að eyða tsetse-flugum hófust í rannsókna- stofum FAO og IAEA árið 1965. Leita þurfti leiða til að framleiða flugumar í miklum mæli. Það var hins vegar erfíðleikum háð vegna þess að tsetse- flugan verpir ekki eggjum heldur fæðir lifandi lirfur á átta daga fresti. Þær umbreytast lljótt í púpur sem síðan eru geislaðar. Aðalvandinn var að ala flug- 148
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108

x

Náttúrufræðingurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.