Náttúrufræðingurinn - 1976, Qupperneq 29
Eftir frásögn fólks í Gufunesi
tókst að hafa upp á þeini mönnum,
sem vitanlega urðu hvalsins fyrst var-
ir og tóku af honum myndir. Fer hér
á eftir frásögn af því, sem okkur
tókst að upplýsa um þennan sjald-
gæfa hvalreka og nokkrir fróðleiks-
molar um náhvalinn og fyrri heim-
sóknir hans til íslands.
Að sögn Þrastar Sveinbjarnarsonar
í Gufunesi mun það hafa verið
nokkru fyrir páska (í byrjun apríl-
mánaðar) að hvalur sást rekinn á
Geldinganeseiði. Telur Þröstur, að
hér hafi verið um náhval að ræða,
þ. e. a. s. samskonar hval og síðar
fannst aðeins austar á nesinu og við
skoðuðum. Sá hvalur var ekki með
skögultönn að sögn Þrastar. Hann
taldi hinsvegar að einhver hefði
komið sér fyrri að hvalnum og sagað
tönnina af. Ekki kom það óyggjandi
fram, hvort hvalurinn hefði verið
með afskorna tannrót fremst í skolt-
inum. Þeir, sem skoðuðu hvalinn,
hafa ekki gert sér grein fyrir að hér
gæti verið um merkilegan fund að
ræða, en töldu hvalinn „venjulegt"
smáhveli. Eór Jrví fregnin um Jtenn-
an hvalreka ekki víða. Nokkrum dög-
um síðar hvarf hvalurinn af eiðinu
og áleit Þröstur og aðrir, að hann
hefði horfið af mannavöldum. Þar
sem hvalur Jaessi lá á eiðinu blasti
hann við af vegi Jteim, sent liggur
um hæðahjallann austur af Áburðar-
verksmiðjunni. Af vegi Jressum ligg-
ur greiðfær slóði út á eiðið og J)ví
hægt að aka alveg að hvalskrokkn-
um.
Skömmu síðar fannst „annar“
hvalur á Geldinganesi. Það voru Jteir
Magnús R. Guðmundsson og fvar
Erlendsson, sem gengu fram á nýrek-
inn hval á suðausturhorni Geldinga-
ness, um Jtað bil 300 m austan við
Jrann stað, sem eiðið gengur í sjálft
Geldinganesið. Hvalurinn lá efst
uppi undir grasbörðum í lítilli vík og
sást ]ní ekki fyrr en fram á hann var
gengið. Ekki gerðu Jreir félagar sér
heldur grein fyrir fáfengi fundar
síns; [ió mun glæsileg skögultönnin
hafa valdið Jtví að Jteir sóttu mynda-
vélar og verkfæri. Tóku ])eir margar
ágætar litmyndir af hvalnum og
stýfðu hann síðan stolti sínu og höfðu
á brott með sér.
Af myndum og frásögn Jteirra fé-
laga er hægt að draga ýmsar ályktan-
ir um Jrað hvernig landtakan hafi
átt sér stað. Þegar hvalurinn fannst,
2. mynd. Skögulönn náhvalsins, sem fannst í Geldinganesi. Mælikvarði sýnir lengd
tannarinnar í cm. Ljósm. Ólafur S. Ástþórsson.
23