Náttúrufræðingurinn - 1976, Qupperneq 83
3. 5. 1963 sá ég 50—70 fljúga í hóp
vestur yfir Öldulón á Hnappavöllum.
Hinn 21.4. 1965 sá ég þrjá hópa með
20, 25 og 50—70 fuglum á flugi yfir
brimgarðinum við Kvískerjafjöru.
Við Jökulsá sá ég loks 40 jaðrakana
fljúga í hóp til vesturs 26. 4. 1967. Á
Fagurhólsmýri sá ég einn jaðrakan
26. 2. 1964 og dvaldi hann þar á tún-
inu í nokkra daga. Að sumarlagi hef
ég ekki séð jaðrakana í Öræfum.
Stelkur Tringa totanus
Stelkar hafa verið algengir í Öræf-
um sem farfuglar á vorin, en að sum-
arlagi höfðu þeir ekki sézt þar fram
að árinu 1943, en það ár varð vart við
stelka á Fagurhólsmýri í júní. Síðan
varð lítið vart við þá í Öræfum að
sumarlagi fram að árinu 1955. En í
júlí 1957 fann Sigurður bróðir minn
fyrsta stelkshreiðrið í Öræfum, en
það var á Hofi og þar námu stelk-
arnir fyrst land. I Svínafelli varp eitt
par 1959 og fann ég þar þrjá nýklakta
stelksunga 13. 6. það ár og var það í
fyrsta sinn sem þeir urpu þar. Það ár
bar töluvert á stelkum á Hofi og
Hnappavöllum. Á svæðinu frá
Hnappavöllum að Svínafelli fór
stelkum síðan smáfjölgandi frant til
ársins 1970 og á þessu svæði verpur
nú nrikið af stelk. Engum getum skal
að því leitt, hvers vegna stelkar tóku
ekki að verpa í Öræfum fyrr en eftir
1950.
Á vorin fara fyrstu stelkarnir að
koma 12. 4. en flestir koma þeir
venjulega frá 15. til 25. 4. og oft eru
þeir að koma fram að mánaðamótum
apríl—maí. Oftast koma þeir í smá-
hópum, 10—25 í hóp, en alloft hef ég
séð stærri hópa með allt að 60—70
fuglum. Á haustin ber oftast lítið á
stelkum í Öræfum, en þó hefur kom-
ið fyrir að allstórir hópar þeirra stað-
næmist í votlendi á Fagurhólsmýri í
september. Á veturna hef ég ekki séð
stelka í Öræfum.
Rauðbrystingur Calidris ca?iutus
Fyrst sá ég rauðbrystinga hér í Ör-
æfum árið 1951, en þeir hafa ekki sézt
þar árlega fyrr en eftir 1956 og sjald-
an hefur borið mikið á þeim. Þeir
koma venjulega frá 5.—15. maí, í
mjög þéttum hópum og oftast margir
í hverjum hóp eða sjaldan færri en
100—200. Er líkast því sem rautt ský
þjóti yfir fjörunni þegar þeir koma
á vorin, en rnjög sjaldan staðnæmast
þeir þá, heldur halda áfram til suð-
vesturs meðfram fjörunni. Hef ég ein-
göngu séð rauðbrystinga á svæðinu
frá Jökulsá að Ingólfshöfða. Eftir 20.
ágúst fara rauðbrystingarnir að koma
frá Grænlandi og staðnæmast þá oft
í fáeina daga, rnest við svonefnt Öldu-
lón á Hnappavöllum. Eru þó ára-
skipti að því, hve mikið ber á þeirn á
hverju hausti. Þann 29. 8. 1962 bar
miklu meira á þeim hér á Kvískerj-
um og við Öldulón en endranær, og
voru þeir þá í allstórum hópum í
nokkra daga.
Sendlingur Calidris mdritima
Fremur lítið verður vart við send-
linga í Öræfurn á sumrin, en mest er
um þá frá Kvíá að Fjallsá á Breiða-
merkursandi, en á melum þar hafa
nærri árlega lundizt bæði egg og ung-
ar og tel ég líklegt, að oft verpi 3—6
sendlingshjón á þessu svæði. Ein
sendlingshjón hafa einnig orpið ár-
lega við Öldulón á Hnappavöllum.
77