Náttúrufræðingurinn - 1976, Blaðsíða 96
þar skilyrði víða góð fyrir þá, þar sem
skógargróður er þar víðáttumikill og
víða smálækir, sem falla niður skóg-
arbrekkurnar, en músarrindlar sækj-
ast mjög eftir að verpa í nánd við
smálæki og þá oft í lækjarbökkunum.
Venjulega eru hreiðin ofin í mosa
sem slútir niður frá bökkunum eða
í bröttum brekkum og jafnvel framan
í mosagrónum klettum. Oftast búa
karlfuglarnir til fleiri en eitt hreiður,
en þeir fóðra þau ekki að innan.
Kvenfuglinn velur svo eitt iireiðrið
og fóðrar það innan með fjöðrum.
Sakir þess, iive sjaldan músarrindils-
hreiður hafa fundizt liér á landi, svo
og þess, live lítið er vitað um varp-
hætti þeirra, ætla ég að gera hér
nokkru nánari grein fyrir þeim mús-
arrindilshreiðrum, sem é? hef fundið
í Öræfum.
Skrá um músarrindilshreiður fund-
in i Öræfum á árunurn 1958—1975:
1) 11.5. 1958. Hreiður með 7 óunguð-
um eggjum á Kvískerjum. Hreiðrið
var ofið neðan í þak klettaskúta.
Ófóðrað hreiður l'ann ég þarna vorið
1957.
2) 16. 5. 1958. Hreiður með 6 óunguð-
um eggjum við Heitu-Læki í Skafta-
felli. Hreiðrið var ofið í rnosa í lækj-
arbakka.
3) 17. 5. 1958. Hreiður með 4 óunguð-
um eggjum í Lambhaga í Skaltafelli.
Var hreiðrinu komið fyrir milli róta
reyniviðar, sem óx á klettabrún og
sást í rætur hans á brúninni.
4) 17. 5. 1958. Hreiður með 7 stropuð-
um eggjum í Svínafelli. Það var ofið
í rnosa í lækjarbakka.
5) 18. 5. 1958. Fuilbúið lireiður á Kví-
skerjum. Það var ofið í mosa i klctta-
skoru framan í háum klettum, um
300 m frá hreiðri nr. 1. Hinn 29. 5.
var fuglinn búinn að verpa 7 eggjunt
í hreiðrið. Hreiður 1 og 5 tilheyrðu
iirugglega 2 pörum.
6) 23. 5. 1958. Hreiður með 4 óunguð-
um eggjum í Skaftafelli. Það var ofið
í birkirætur neðan í barði. 26. 5.
voru (i óunguð egg í hreiðrinu.
7) 18. 5. 1959. Hreiður nteð 1 eggi aust-
an í Skaftafellsbrekkum. Var hreiðr-
ið ofið í birkirætur undir grasbarði.
2. 6. voru 6 egg í hreiðrinu. Þá fann
ég einnig tvö fullbúin lireiður frá
árinu 1958. Var annað þeirra mor-
andi í flóm, en hunangsfluga hafði
gert sér bú í hinu. Bxði voru hreiður
þessi í Skaftafelli.
8) 2. G. 1959. Hreiður með 6—8 stálpuð-
um ungum við Bæjarlækinn í Svína-
felli. Var hreiðrið ofið í mota Jrar
sem gras slútti fram af kletti. Hinn
10. 6. flugu ungarnir úr hreiðrinu
og kom ég að Jreim um kvöldið Jtar
sem Jteir sátu Jtétt saman á mosa
undir birkirunna skammt upp af
hreiðrinu. Flugu ungarnir upp Jteg-
ar ég nálgaðist þá, en kvenfuglinn
gerði sig líklegan til Jress að fara með
æti inn í holu undir birkihríslu og
fékk flesta ungana til að fara inn í
holuna. Karlfuglinn var í nánd við
ungana og gaf frá sér í sífellu hljóð,
sem líktist bjölluhljóði og sló stélinu
ótt og títt fram á við, en Jiað gerii
hann oft við hreiður [tegar menn eru
nálægt Jrví.
9) 10. 6. 1959. Hreiður með 3 eggjum
í Svínafelli. Það var olið í mosa und-
ir grastorfu á litlum kletti. Karlfugl-
inn var 40—50 m frá hreiðrinu og
söng mikið. 15. 6. voru 8 egg komin
í hreiðrið.
10) 16. 6. 1959. Hreiður með nýklöktum
ungum í Svínafelli, um 200—300 m
frá síðasttalda hreiðri. Það var undir
skógivöxnu grasbarði og liulið mosa
að mestu. Flaug músarrindillinn út
úr hreiðrinu þegar ég nálgaðist það.
11) 16. 6. 1959. Þá var músarrindill að
lóðra hreiður með fjöðrum í Bæj-
argili í Svínafelli og tel ég líklegt, að
hér liafi verið unt sama par að ræða
90