Samvinnan - 01.02.1968, Side 11
félags, á einstökum deildar-
fundum víðsvegar, flytja for-
ystumenn félaganna marg-
háttaðar og oft stórfróðlegar
frásagnir um margt það er alla
félagsmenn varðar, þessa
njóta þeir sem fundina sækja,
aðrir lítið, nema þá í misjöfn-
um frásögnum áheyrenda.
Sama, nema enn stærra og
margbreytilegra yfirlit er gefið
á aðalfundi S.Í.S. Megin þessa
á erindi til mikils hluta þjóð-
arinnar, a. m. k. í sveitum, en
fátt eitt kemur fram. Og þó
aðeins í dagblaðadálkum sern
horfið er um leið og litið er
yfir.
Þá á hún að flytja frásagnir
af kaupfélögum landsins og
Sambandsins, framkvæmdum,
athöfnum, stutt og greinar-
gott, og að síðustu minnast lát-
inna félaga. Ekki í löngum
frásögnum, heldur geta þeirra
í fáum línum er unnið hafa og
starfað sem samvinnumenn
áratugum saman eða getið sér
sérstaks orðstírs fyrir skemmri
en minnisverð störf. Þetta sýn-
ist raunar ærið, en margt er þó
ótalið. Erlendar fréttir, frem-
ur þó af leiðtogum samvinnu-
manna en heimskunnum ofur-
mönnum, eins og nú er þó
byrjað á.
Samvinnumenn ættu að
vera þess megnugir að verja
nokkrum bls. á mánaðarfresti
til að birta innlendan fróðleik,
7