Andvari

Volume

Andvari - 01.06.1959, Page 42

Andvari - 01.06.1959, Page 42
40 HANNES PÉTURSSON ANDVARI „lijartans þökk“ hjá honum. Hins vegar álítur hann dauða foreldra sinna vilja þess, sem „sjóinn lægir", og á því „skyn- bæra valdi'1 verði hann að hefna sín, eigi hann að koma hefndum fram. Ég er ekki reiðubúinn að svara því, hvort þessi skoðun Sigurðar trölla muni hafa átt rætur í skáldinu sjálfu, þegar hann orti kvæðið. Svo mikið er víst, að nokkrum árum síðar er ekki svo. Kvæðið er ort 1897, eins og fyrr greinir, en 16. júli 1909 yrkir Stefán eftirmælin eftir son sinn, Gest, sem sleginn var til bana af eldingu. Þar segir: Já, nú er vægð að vita á því grein, að var ei það, er laust þig svona, kæri, neitt skynbært vald, er vilji neinu mein né venji á gott með slys sem tækifæri. Og rúmu ári seinna segir hann í bréfi: „Og tilveran, Þorsteinn. Utan mannanna og kringum mig er hún hvorki ill né góð, og ásetningslaus, en mig dreymir um, að við myndum geta gert okkur hana bærilega með viti og góðum vilja, en henni að þakkarlausu".1) Hefði tilveran verið „ásetningslaus" í augum Sigurðar trölla, voru hefndir til einskis, á engu var að hefna. En nú er hún það ekki, kannske vegna þess, að skáldið ætlar honum að gcra uppreisn gegn andlegri kúgun, stefnir að því að sýna mikilleik mannsins, íklæddan gervi Sigurðar, gagnvart öflum tilverunnar. Því gæðir skáldið söguhetju sína hinum frumstæðu viðhorfum. Með því móti tekst honum að koma boðskap sínum á fram- færi í viðbrögðum hennar: í uppreisn Sigurðar trölla er fólgið heróp skáldsins: maður, vertu frjáls! En Sigurður stendur um stund í spot- um Egils Skallagrímssonar, kennir van- máttar síns til hefnda: Ég fann ég hafði ei afl við Ægir né ótíð mátti hóltngang bjóða. Egill sættist við Óðin, en Sigurður trölli gengur skrefi lengra en Borgar- bóndinn, hann finnur leið til að veita hefndarþörf sinni útrás með því að segja óveðrunum, tæki forsjónarinnar, stríð á hendur og berjast við þau um manns- lífin. Uppreisn Sigurðar er mikilvæg. Sé lífsskoðun Stefáns höfð í huga, verður Ijóst, að hún er viðbrögð hins „heiðna" manns að dómi skáldsins, hins „heiðna" nútímamanns, sem Stefán mundi sjálfur hafa talið sig vera. Það, sem skilur á milli kristilegs og heiðins hugarþels í augum skáldsins, er þetta: Hið fyrrnefnda beygir sig í auðmýkt undir örugga hand- leiðslu guðs, hið síðarnefnda hefur í hótunum við öflin utan mannsins, sem er frjáls smiður sinnar eigin gæfu. Þetta verður augljóst í eftirfarandi bréfkafla: „Bjarni, Vídalín og Bólu-Hjálmar eru allir heiðnir menn í anda, hvað mikið sem þeir rausa um trú. Auðmýktarandinn er kristindómsandinn, eins og t. a. m. Ilallgr. Pétursson, Matthías (efa-trúar- maðurinn) o. fh; þeir tala um „beygingar" og „bljúgleik". Bjarni skipar guði að láta „vanblessunar vitin skilja við sig“, ef hann ekki hafi gert svo og svo. Vídalín talar um „ofríki við himnaríki" og Hjálmar um að rjúfa ramtimbrað himna- rjáfur".1) í öðru bréfi lætur Stefán í ljós andúð sína á trúnni um farsæla stjórn annars staðar frá en úr mannheimum: „T. d. var ég gestur eins andatrúar- öldungsins í Rvík um árið, hygginda- manns að almenningsdómi. Hann vildi koma mér út í andatrú. Ég vék því af mér ýmislega, mcð hægð. Ég þakkaði 1) Bréf og ritg. I, bls. 247 (6. sept. 1910). 1) Bréf og ritg. I, bls. 39 (1891).
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.