Andvari - 01.01.1982, Blaðsíða 27
ANDVART
ÁSMUNDUR GUÐMUNDSSON
25
enn vill hann halda innreið sína í sálir vor allra og ummynda þjóðlífið með
áhrifum anda síns. Stöndum ehki gegn þessum eins og þeir, sem þekkja
ekki sinn vitjunartíma. Opnum borgarhliðin fyrir honurn, hvern bæ og þorp
og hverja sveit, hvert hús og hvert hjarta. Hyllum hann með hlýðni í verki
°g sannleika. Hrópum ekki hátt, en biðjum Guð með barnslegri auðmýkt
hvert fyrir öðru og allri þjóðinni."
Þess skal getið, að Kirkjuritið var kostað af Prestafélagi íslands og seld-
ist allvel. Þessir unnu við þsð með sr. Ásmundi, en sjálfur vann hann að því
í 25 ár:
Prófessor Sigurður P. Sívertsen féll frá eftir þrjú ár.
Prófessor Magnús Jónsson vann með honurn í 10 ár, flesOll í seinni
hluta þeirra.
Eg — Gunnar Árnason — í fjögur ár.
Eftir það taldi Ásmundur sig ekki geta sinnt því lengur og fól mér það
að fullu.
Áldrei vorurn við ósáttir á einn eða neinn hátt.
Próf. Ásmundur Guðmundsson var skipaður hískup 30. janúar 1954
og vígður biskupsvígslu af sr. Bjarna Jónssyni vígslubiskupi 20. júní sama ár.
I lok ævisögu sinnar komst binn nýi biskup svo að orði: ,,Ég þakka af alhuga
hið mikla traust, sem mér hefur verið sýnt, oa ógleymanlega ástúð. Hvort
tveggja mun verða mér dýrmætt veganesti á komandi tímum. og ég b;ð
Guð um hjálp til að bregðast ekki því, sem mér er tiltrúað. heldur vinna
kristni hans og kirkju á Tslandi."
Því brást hann ekki.
Steingrímur Sreinþórsson. báverandi forsætis- og kirkiumá 1 °ráðherra
'hélt biskupi að lokinni vígslu fjölmenna veizlu eins og siður er við slík
tækifæri og komst þá m. a. svo að orði:
,,Þjóðin hefur jafnan sett von sína og traust á kirkjuna.
Enn og ef til vill aldrei frek r en nú á öld hinnar mildu tækniþróunar
er tvennt nauðsynlegt, ef framtíð þjóð'irinnar á að standa á fjórum fótum:
Að leiðsögn og kris'ni sé traust. Að hún standi vörð urn helgustu op
háleitustu sigurkenningar og trúarhugmvndir kristninnar og að hún verndi
og verji eitt þúsund ára gamlan menninpararf vorn - tungu vora og þjóð-
erni - sem er helgasta eign hverrar þjóðar. Fylgi hin íslenzka kirkja trú-
lega dæmi sinna mestu og vitrustu kirkjuhöfðingja fyrr og síðar og starfi
hún í anda þeirra, þá mun þjóðin hlíta leiðsögn hennar."
Var það vel mælt.