Andvari - 01.01.1982, Blaðsíða 87
ANDVARI
EKKJAN í HOKINSDAL
85
Eg enda svo þessar línur með kæru
þakklæti fyrir velvild yðar mér til handa
og beztu óskum til yðar.
Yðar skuldbundinn vinr
Þorvaldr Jónsson
Þar með var þessum anga af erfða-
málum bræðranna Jóns og Jens Sigurðs-
sona frá Rafnseyri lokið, og samtímis
reyndist traustur grundvöllur lagður að
ævilangri vináttu þeirra tveggja, sem hér
höfðu lagt á ráðin, kaupstjórans og at-
hafnamannsins Tryggva Gunnarssonar
og hins auðsæla héraðslæknis og spari-
sjóðsstjóra, Þorvalds Jónssonar á Isa-
firði.
1. Tryggvi Gunnarsson varð forseti Hins íslenzka þjóðvinafélags eftir Jón Sigurðsson og var
það upp frá því tíl dauðadags, 1917, nema árin 1912-13. Hann hafði löngum mikil afskipti
af útgáfumálum félagsins, iþó að meðstjórnarmenn hans í Reykjavík, t. d. Björn Jónsson
ritstjóri, Eiríkur Briem prestaskólakennari, Jón Olafsson alþingismaður og fleiri létu hann
aldrei öllu ráða. - Lengi voru hvergi fleiri kaupendur félagshókanna en í ísafjarðarsýslu.
2. ]hís. ár myndinmr á við þjóðhátíðarmynd Benedikts Gröndals, sem Tryggvi gaf út 1874.
Umrætt danskt Magazin kynni að vera hin danska fyrirmynd Dýravinarins, sem Tryggvi fór
að gefa út um þessar mundir, hvattur til þess og studdur af dönskum kvennasamtökum um
dýraverndun og frænku sinni, Benedicte Arnesen-Kall rithöfundi.
3. Börn hjónanna Þórdísar Jónsdóttur og sr. Sigurðar Jónssonar prófasts á Rafnseyri, voru þau
þrjú, sem hér eru nefnd: Jón (1811-79); Jens rektor (1813-72); Margrét (1816—88), kona
Jóns skiþherra Jónssonar í Steinanesi.
4. „Waldemar" mun hafa verið eitt af póstskipum Sameinaða gufuskipafélagsins (DFDS) í
íslandsferðum þessi árin.
5. Laun embættismanna voru allt frá 1875, þegar fyrstu launalög opinberra starfsmanna voru
sett og Alþingi fékk hlutdeild í fjárveitingart'aldi, eitthvert heitasta deilumál sem fundið
varð, og allir þjóðhollir þingmenn, sem ná vildu endurkjöri, Jrurftu helzt í sífellu að minna á
andúð sína á háum launum landsómaganna eins og einn þeirra kallaði þessa starfsmenn lands-
ins.
6. Um þessar mundir var Tryggvi gjaldkeri Kaupmannahafnardeildar Hins íslenzka bókmennta-
félags.
7. Á þessum árum voru læknishéruð landsins númeruð, og var umdæmi Þorvalds, ísafjörður
og nágrenni, nr. 5.
8. Kona Þorvalds var Þórunn Jónsdóttir (1842-1912) frá Gilsbakka, systir guðfræðinganna
Árna faktors Ásgeirsverzlunar á ísafirði og Gríms verzlunarmanns og barnakennara á sama
stað.
9. Þ. e. hve mikið í peninguin kæmi í hennar hlut i arf eftir Jón bróður hennar.
10. Jón Sturluson (1836-82) verzlunarmaður var öðru hvoru í þjónustu Tryggva og Gránu-
félagsins, og m.a. var hann um eitt skeið að reyna að selja íslenzkar niðursuðuvörur í Kaup-
mannahöfn.
11. Arctnrus var skip, sem lengi var í förum milli íslands og Danmerkur á vegum Sameinaða.
12. Sigríður (Jensdóttir Sandholts) var ekkja Ásgeirs eldri Ásgeirssonar kaupmanns á Isafirði,
en móðir Ásgeirs yngri, kaupmanns á sama stað. Dóttir hennar, Sigríður Ásgeirsdóttir, fyrri
kona Áma faktors Jónssonar, var nýlega dáin, þegar Þorvaldur skrifar þetta bréf, þ. e. 13.
júlí 1882.
13. Eins mánaðar Sigt: ávísun (oftast á kaupmann, fyrirtæki eða einkaaðila) skyldi greidd innan
mánaðar frá framvisun.
14. Hjálmar Jónsson eða Johnsen (1822-1901) kaupmaður á Flateyri var kunnur athafnamaður
á sinni tíð. Hann var um þessar mundir að setjast að í Kaupmannahöfn.
15. Legat: dánargjöf.