Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.1982, Blaðsíða 68

Andvari - 01.01.1982, Blaðsíða 68
66 FINNBOGI GUÐMUNDSSON ANDVABI Jóhannssonar 6. júní 1910 ræðir hann um viðtökurnar vestan hafs og segir þá m. a.: ,,Hér eigum við í höggi við bókmenntalega afturför fjöldans íslenzka, óalþýðleika sjálfs mín, óttann við skoðanir mínar, stirfnina, tilfinningalevsið og „torfið“ og bölsýnina, sem búið var að núa inn í almenning, og ofsjónina yfir þessari ,,frægð“ minni - heilög hamingjan!“ Stephan hafði áður, í bréfi til Rögnvalds Péturssonar 19. nóvember 1906, vikið að sumu því sama og hér með svofelldum orðum: „Hérna á fyrri tíð og yngri árum, „er glaður ég raust mína hóf“, var öllum kennt, að ég væri torskilinn og bölsýnn, þangað til að það varð þjóð- trú. Þá var fáum um það gefið, að fólki fyndist það skilja mig, - eins og við var að búast! Mönnum er illa við áreynslu, og sannleikurinn á nærfötunum einum þykir aldrei prestur í hempu. Þættist múgamaðurinn skilja, hvað ég sagði, hlaut „kritikin“ og lærdómurinn að vita, að það var ekki svo. Sjálf- sagt var þetta að sumu leyti satt. En hvað mikið af því var satt, aðeins á þann hátt, að það, sem ég var að reyna að segja, var nýjung í hugsunarhættinum, sem menn þekktu ekki deili á og var öðruvísi en það, sem þeir voru vanastir við - og hvað mikið var aftur mitt ,,myrkraverk“, það eru sakir sér. Nú er þagað um bölsýni og dróttkvæða orðaskipun, það sem skilningurinn helzt steytti á. Mér er ekkert gramt út af neinu þessu. Ef eitthvað af því voru hindurvitni, þá fer það sömu leið eins og önnur hindurvitni. Yfir höfuð hefir kvæðunum mínum verið vel fagnað - kannske um skör fram. Eg er hjartans ánægður með það „meðalverð allra meðalverða“, sem út úr því fæst.“ Eitt af því, sem Stephan telur að aðrir ofætli í kveðskap sínum, eru áhrif erlendra skálda á hann. Stephan reifar þetta í bréfi til Þorsteins Erlingssonar 6. september 1910: „Svipi einhverjum hugsunum saman, mun það oftar, að hending ræður því, eða þá líkt loftslag af andlegu andrúmi, sem tveir ókunnugir menn hafa lent í, en mér hafi borizt það í bókum þeirra. Yfirleitt er ég dauðans illa að mér í veraldarskáldskapnum, og tel ég mér það ekki til gildis. Fátækt mín og tíma- leysi stóð þar í vegi og eigin sérvizka, sú, að ef maður límdi sig ofan í einhvern, stæði sá í hættu með það að apa eftir kækina hans, en kæfa sitt eigið, og því verr sem sá væri voldugri, en maður sjálfur vesælli! Vikuna sem leið sagði einn lærði maðurinn okkar mér sjálfum, að ég væri þaullesinn í Browning. Eg hefi lesið eitt eða tvö kvæði, smáhúsganga eftir Browning. Elcki er frægra frá að segja.“ Fyrr á þessu sama ári, í bréfi til Rögnvalds Péturssonar 28. apríl, hafði hann fjallað um aðra áráttu manna, sem sé þá, að sum kvæðanna væru bein- línis ort með ákveðnar íslenzkar persónur eða stefnur í huga. Hann segir þar m. a.: „Ég er þaulvanur þessu í lífinu, að mönnum sárni við mig eða þyki vænt
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.