Andvari - 01.01.1982, Page 31
ANDVAIU
ASMUNDUR GUÐMUNDSSON
29
um, laus við erlendar stælingar og ósnortinn af þröngsýnum áróðri eða
dómsýki manna.“
Biskup livetur viðkomendur að vanda messuna sem mest, — ekki
síður sönginn en ræðuna o. fl.
„Kirkjuhúsið skyldi jafnan með einstökum hætti lyfta hugunum til
hæða.“
Mörg geri það líka þegar.
Þá fagnar hann og þætti kvenna í kirkjustörfum um land allt.
Boðskapur prestanna á að vera fagnaðarhoðskapur i líkingu við boð-
skap Krists. Þess er engu minni þörf nú en í frumkirkjunni. Nema fremur
sé.
Breyttir tímar og breyttar aðstæður krefjast breyttra starfsaðferða. Kirkj-
an þarf t. d. að taka sýningar kvikmynda í þjónustu sína miklu rneira en nú.
Morgunbænir og kvöldbænir i útvarpi ættu að vera hvern virkan dag.
Stutt sönglist og kristileg erindi á mótum kirkjukóra. Gömul og ný sálma-
lög í sambandi við sumarskemmtanir og æskulýðssamkomur. Þannig mætti
lengi telja.
„En aðeins eitt tryggir það, að boðskapur vor geti náð til allra, að vér
göngum sjálfir kærleiksleið. Mál kærleikans fá allir skilið.“
Fátt mun hafa snortið Asmund biskup meira né verið honum hug-
ljúfara en messa sú, semhann flutti í Skálholti 1. júlí 1956. En þá voru liðn-
ar 9 aldir frá því að fyrsti biskup íslands, ísleifur Gizurarson, hlaut biskups-
vígslu á hvítasunnudag 1056 í Brimum.
Margt var um manninn fyrrnefndan messudag. Ásgeir Ásgeirsson for-
seti, Steingrímur Steinþórsson forsætisráðherra, nokkrir tilkvaddir útlend-
ingar, meginhluti íslenzkra presta og fjöldi annarra Islendinga fylltu þar
kirkjuna.
Allt fór vel fram. Og til er mikil myndskreytt bók skráð af Sveini Víkingi
um þennan glaða og merka helgidag.
Arið 1956 varð Ásmundi biskupi til gleði og gi'ftu á fleiri en einn veg.
Auk hinnar miklu Skálholtshátíðar skal getið tveggja stórviðburða.
Sá 'fyrri var, að 11. apríl hélt hann guðsþjónustu við komu Dan-
merkurkonungs og drottningar hans til Islands.
1 Iinn síðari var mánaðarferð frá 6. september - 4. október til Norður-
landa og Rússlands.
Samkvæmt beiðni aðstoðaði biskup þá við biskupsvígslu í Finnlandi.