Andvari - 01.01.1982, Síða 79
BERGSTEINN JÓNSSON:
Ekkjan í Hokinsdal og 13 hundruð
í jörðinni Arnardal
Hið mikla bréfasafn Tryggva Gunn-
arssonar bankastjóra, sem varðveitzt
hefur, geymir vitnisburð um rnikinn
fjölda fólks, sem hann átti meiri eða
minni skipti við um dagana, og eru þau
álíka margvísleg og fólkið. Meðal þeirra
bréfavina, sem hann átti hvað lengst
saman við að sælda um ýmis mál og
óskyld, var Þorvaldur Jónsson (1837-
1916) læknir á ísafirði, sonur Jóns Guð-
mundssonar ritstjóra Þjóðólfs. Isafjörður
var þó í þeim hluta landsins, sem at-
hafnasvið Tryggva náði einna sízt til
á kaupstjóraárum hans, en þá er þess
að gæta, að auk aðalstarfa sinna hafði
hann ávallt margvíslegan erindrekstur
og félagsstörf með höndum, svo að vand-
fundið var um síðir það lögsagnarum-
dærni, þar sem hann hafði aldrei átt
erindi að reka í einhverri mynd.
Hér er ætlunin að bregða upp mynd
af einu máli aðallega, sem þeinr Tryggva
og Þorvaldi fór á milli, þótt í leiðinni
verði drepið á fleira eða sýnt í jaðrana
á ýmsum efnum.
Sagan segir, að Þorvaldur hafi varla
verið læknir nema í meðallagi, en hann
lærði fræði sín aðallega hjá Jóni Hjalta-
Iín landlækni fyrir daga Læknaskólans.
Hann hafði löngum rnörg járn í eldi
samtímis og minnti í því á Tryggva. Má
geta þess, að hann var forstöðumaður
Sparisjóðs ísfirðinga frá stofnun hans,
1876, til 1904 þegar hann rann inn í
útibú Landsbankans á ísafirði, og 1904-
1914 var hann útibússtjóri Landsbank-
ans. Þá stundaði hann ýmiss konar
kaupsýslu og fésýslu, m.a. var hann bók-
sali og umboðsmaður blaða og útgef-
enda. Sem dæmi um fjölbreytt samskipti
þessara tveggja áhrifamanna, má tilfæra
lungann úr elztu bréfunum frá Þorvaldi
til Tryggva, sem varðveitzt hafa, en af
þeim má ráða, að kynni þeirra eru þá
ekki ný af nálinni. Umrætt bréf er dag-
sett á ísafirði 1. marz 1881:
Herra alþingismaður Tryggvi Gunnars-
son:
Eg hefi nú 77 meðlimi Þjóðvinafélags-
ins,1 en sendi féhirði þess í Reykjavík
tillögin. Ekkert hefir selzt af félagsrit-
unum eða hinum eldri bókurn Þjóðvina-
fél., en Magazinið frá yðr sjálfum er
nú útselt, og hefi eg beðið mann í Höfn
færa yðr 25 kr. frá mér fyrir það og
2 eða 3 þús. ár. myndirnar," er þér
skilduð eptir hjá mér 1878. Af þeim er
allt annað óselt enn og eins af hinum
dönsku bókunum í sumar. Hvað á eg
að gjöra við það sem óselt verðr í
sumar? Af Magazininu mætti víst selja
hér enn nokkur expl. og eins ef þér
hefðuð fleiri slík tíðindi með myndum
og eins ódýr.
Eins og yðr mun kunnugt áttu þau