Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1982, Page 135

Andvari - 01.01.1982, Page 135
ANDVAIU HEIMAFRÆÐSLA OG HEIMILISGUÐRÆKNI 133 ið að geðgróinni venju. Við rismál skyldu börnin snúa sér í austur og signa sig í nafni föður, sonar og heilags anda og enn á ný fara með bænina um bless- un Drottins og varðveizlu. Einnig kenndi móðirin börnum sínum að gera krosstáknið og biðja, er þau fóru í ný nærföt. Er stundir liðu fram, lét hún þau fara með kvöld- og morgunbænir, flestar eftir Hallgrím Pétursson. Kona ein, fædd 1863, man ekki, hve gömul hún var, er kristindómsfræðslan hófst. „Eg hef vísast verið mjög lítil,“ segir hún, „því að ég man, að ég hló hjartanlega að systur minni, sem var einu ári yngri og vart gat borið fram orðin í versunum, sem hún átti að læra.“ Þær systur áttu nefnilega að kvöldi að fara með það, sem þær höfðu lært, og leiðrétta hvor aðra. Gamall maður segir, að amma hans kenndi honum barnalærdóminn og lagði ríkt á við hann að muna eftir að krossa sig og biðja Faðirvor. Að öðrum kosti hlyti honum að farnast illa í öllum efn- um. Svo langt gengu ekki allir. Borg- firzk kona lærði við móðurkné, að bæn- in væri þeim til hjálpar, er nálgast vildu Guð. Almennt virðast mæður aðeins hafa kennt börnum að „fara með“ bæn- ir, en sumar leiðbeindu þeim við að biðja með eigin orðum. Maður nokkur, fæddur 1898, kveður móður sína hafa setzt á rúmstokkinn og farið hóglega með bænarorð, sem hann hafði eftir. „Éinnig,“ bætir hann við, „kenndi mamma mér að biðja til Guðs með eigin orðum og sagði mér, hvernig és? ætti að umgangast meðbræður mína.“ ÞetJar um mikilsverða hluti var að ræða, lanði móðirin ríkt á við börnin, að þau kappkostuðu að skilja efnið, en stillti maqni að sama skapi í hóf. Þannig var það að jafnaði móðirin. sem hóf kristindómsfræðsluna. En það gat verið faðirinn eða amman, ef hún lifði, sjaldnar afinn. Stundum gegndi fóstra hlutverkinu, þegar móðirin var önnum kafin við yngri börn. Olæs börn, ung að árum, lærðu ekki ýkia margt. Þó var um fleira að ræða en Faðirvor: Nokkrar borðbænir, morgun- og kvöldbænir og nokkur vers úr Passíu- sálmum Hallgríms Péturssonar. Þegar börnin voru orðin læs, urðu bænirnar fleiri, sumar mjög langar, og við þær bættust fleiri erindi úr Passíusálmum. En þetta var misjafnt og breyttist með tímanum. Fyrir einum til tveimur mannsöldrum var kristindómsfræðsla heimilanna mun umfangsmeiri en síðar. Frásagnir sýna, að trúaruppeldi móð- urinnar hefur haft mikla þýðingu. Séra Magnús Helgason er á íslandi þekktur fyrir harða andúð á utanbókarlærdómi og ríka alúð við biblíusögur. Hann kveð- ur móður sína hafa hlýtt honum yfir kverið, og rekur hann ekki minni til þess, að af því hefði hann nokkurt gagn, hvorki fyrr né síðar. „En ég minnist þess,“ segir hann, „meðan ég lifi, er hún kom til mín á kvöldin, þegar ég var háttaður, og lét mig lesa vers, sem hún hafði kennt mér og ég hafði dálæti á og sjálfur hafði skrifað hjá mér og ætíð fór með á eftir Faðirvorinu." Þessi dómur tjáir vel flestra reynslu: Mjög fáir hæla kverlærdómnum, og margir tala af lítilli virðingu um húslesturinn. En enginn niðrar þeirri kristindóms- fræðslu, sem móðirin í upphafi lét í té. Þeir, sem ótilkvaddir tjá sig um þetta efni, minnast þess með dýpstu virðingu. Unqur Islendingur, alinn upp á gamla vísu, lýsir reynslu sinni á þessa leið: „Eg verð að viðurkenna það undan- bragðalaust, að sú munnlega fræðsla, sem ég á þennan hátt naut hjá móður minni, var einasti sanni kristindómur- inn, sem ég kynntist í bernsku, og einn-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.