Andvari - 01.01.1990, Síða 82
80
KRISTJÁN ÁRNASON
ANDVARI
Hver er sá alblóðugi? Af útliti að dæma
gæti hann gefið okkur nýja skýrslu
af gangi uppreisnarinnar.
Orð nornanna um sudda og þoku eru mikilvæg, því þau gefa tóninn í því
sem á eftir fer þar sem næturlegar og hráslagalegar náttúrumyndir gefa í
skyn á ljóðrænan og kynngimagnaðan hátt hvernig illskan nær stöðugt meiri
tökum á Macbeth. Gott dæmi um það eru eftirfarandi línur í þýðingu Matt-
híasar Jochumssonar:
Nú fer að kvölda; krákan veifar vængjum
og skundar heim í skógbyggð hræfuglanna.
Nú ganga syfjuð ljóssins börn frá leik
en ljótar vættir fara þá á kreik.
Þú undrast orð mín. Trúa máttu mér:
ei magnast vonskan nema af sjálfri sér.
Þannig fáum við að fylgjast með vexti vonskunnar í sýnilegri mynd upp að
því hámarki er Macbeth skynjar það tóm er hefur myndast í kringum hann,
eftir að hann hefur þurrkað út öll siðferðileg gildi og myrt sjálfan svefninn
jafnt sem frægð og hylli. Orðin sem hann mælir, er hann spyr lát konu sinnar,
eru þau frægustu í verkinu og því ekki ófróðlegt að sjá hvernig þau eru þýdd
á mismunandi hátt af þeim Matthíasi og Sverri, og skulum við takmarka okk-
ur við þá tvo einfaldleikans vegna. Orð frumtextans hljóða svo:
Tomorrow, and tomorrow, and tomorrow,
Creeps in this petty pace from day to day
To the last syllable of recorded time,
And all our yesterdays have lighted fools
The way to dusty death. Out, out, brief candle!
Life’s but a walking shadow, a poor player
That struts and frets his hour upon the stage
And then is heard no more: it is a tale
Told by an idiot, full of sound and fury,
Signifying nothing.
Matthías þýðir þetta svo:
Á morgun, morgun, þetta „á morgun", „morgun",
það mjakast þannig áfram dag frá degi,
uns tímans bók er stöfuð út til enda,
og öll „í gærdag“ glópum hafa leiðbeint
að dauðans dufti. Slokkna, lífsskar, slokkna!
Vort líf er tómur framreikandi skuggi,
eitt leikaragrey sem grettir sig og spriklar
á sjónarsviði, stutta stund, og fer svo;
tóm söguþula, sögð af einu fífli
og full af fimbulglamri, - alveg marklaus, -