Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2000, Page 10

Andvari - 01.01.2000, Page 10
8 GUNNAR STEFÁNSSON ANDVARI in beindist einkum að henni. Gagnrýnin var af ýmsu tagi og auðvitað ekki öll frá andstæðingum kirkju og kristindóms. En ljóst er að þeir hafa gripið þetta tækifæri, er þeir töldu að opinberast hefði veik staða kirkjunnar gagnvart þjóðinni, til að hefja sókn. Hafa birst í blöðum á liðnu sumri margar greinar þar sem vegið er hart að kirkjunni og jafnframt lýst harla neikvæðri afstöðu til kristninnar og áhrifa hennar í þjóðlífinu. Kirkjunnar menn voru furðu daufir til varna og andsvara, nema hinn aldni leiðtogi Sigurbjörn Einarsson biskup, og snerist umræðan svo upp í það hvort hann mætti vítalaust taka svo til orða á opinberum vettvangi sem hann gerði. Þetta varð sem sé dæmigerð íslensk umræða, karp um aukaatriði og um- búðir fremur en innihald. í heild sinni var hún fremur dapurlegur vitnis- burður um samtíðina. Kristnihátíðin árið 2000 var tvíþætt. Annars vegar var minnst eins stærsta og afdrifaríkasta atburðar Islandssögunnar. Skiptir þá engu máli þótt kristnitakan væri fyrst og fremst pólitísk ákvörðun sem var óhjá- kvæmilegt að taka eins og á stóð, hún er jafnörlagarík fyrir því. Þessarar miklu sögu ættu allir íslendingar að geta minnst, hversu mikla eða litla trúmenn sem þeir telja sig, og verður þá um leið að nefna að meir en níu tíundu hlutar landsmanna játa kristni í orði kveðnu. Hins vegar var svo kristnihátíðin vitanlega hugsuð sem trúarhátíð, heitstrenging að efla kristin- dóminn í landinu í orði og verki. Eg veit ekki hvort hin litla þátttaka á há- tíðinni og sá neikvæði andi gagnvart henni, sem fram kom, stafar af því að þjóðin hafi ekki lengur hug á að koma saman á Þingvelli til að minnast sögu sinnar, eða af hinu að hún hirði lítt um kristna trú sína. Varla er hægt að taka mark á því að fólk hafi setið heima af því of miklu þætti kostað til hátíðahaldanna, þegar hvarvetna í samfélaginu má sjá fyrirhyggjulausan fjáraustur í hvað sem er, þarft og óþarft. Enn hefur þetta verið lagt þannig út að þjóðin vilji aðskilnað ríkis og kirkju, sem ýmsum er áhugamál og lýst miklu fylgi við í könnunum. Þegar að því máli er vikið er þess að gæta að fæstir virðast hafa gert sér grein fyrir hvað slíkur aðskilnaður þýðir í raun. Hér er ekki ríkiskirkja eins og stundum er sagt af andstæðingum kirkjunnar. Á íslandi er þjóðkirkja sem gegnir víðtækum skyldum við alla landsmenn og til þess mun vonandi ekki koma að þau margvíslegu bönd sem tengja kirkju og þjóð verði rofin, enda engar horfur á því. Annað mál er hvernig sambandi kirkju og ríkis- valds er hagað. Sú stefna, sem nýlega hefur verið mörkuð í löggjöf og mið- ar að því að færa kirkjunni sjálfstæði í sínum innri málum, er áreiðanlega rétt og hlýtur að styrkja kirkjuna þegar til lengri tíma er litið. Þess vegna var það vafasamt og gaf villandi mynd af þjóðkirkjunni að hún kæmi fram á Þingvallahátíðinni í jafnnáinni samfylgd með oddvitum ríkisvaldsins og raun varð á.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.