Andvari - 01.01.2000, Síða 31
ANDVARI
ANNA SIGURÐARDÓTTIR
29
Árin á Eskifirði 1939-1957
Þegar þau Anna og Skúli fluttust til Eskifjarðar bjuggu þar um 690
manns, íbúum fækkaði nokkuð næsta áratug en voru orðnir um 740
ánð 1960.5s Pau keyptu þar hús og nefndu Útgarð eins og heimili
Onnu í Reykjavík og bjuggu þar öll árin sem þau voru á Eskifirði. í
bænum var óvenju öflugt félagslíf. Par var starfandi Kvenfélagið
Döggin sem stofnað var veturinn 1907 og var elsta félagið í bænum.
Kvenfélög hafa verið starfrækt á íslandi frá 1869 þegar Kvenfélag
Rípurhrepps í Skagafirði var stofnað og þegar hér var komið sögu
voru starfandi kvenfélög um allt land. Félögin líktust um margt hvert
öðru en í grófum dráttum má skipta þeim í fjóra flokka eftir starf-
semi þeirra. Þar er í fyrsta lagi um að ræða líknar- og góðgerðarfélög
en nær öll félögin falla að einhverju leyti undir þennan flokk og
mætti nefna þau hin dæmigerðu íslensku kvenfélög. I öðru lagi
hjúkrunarfélög sem stofnuð voru til að hjúkra fólki og styðja það í
baráttunni fyrir bættu heilsufari, í þriðja lagi iðnfélög sem stofnuð
voru til þess að sem flestir ættu nauðsynlegan fatnað og til að komast
hjá kaupum á erlendri vefnaðarvöru og loks kvenréttindafélög."’9
Kvenfélagið Döggin á Eskifirði starfaði í sama anda og hin dæmi-
gerðu íslensku kvenfélög um allt land,60 en kvenréttindafélag var ein-
ungis starfandi í Reykjavík, Kvenréttindafélag íslands, sem stofnað
var 1907. Hið íslenska kvenfélag, sem stofnað var í Reykjavík 1894,
hafði að mestu vikið frá upprunalegri stefnu í kvenréttindamálum og
snúið sér að velferðarmálum. Þótt framfarasinnaðar konur í dreifbýli
sameinuðust um hagsmunamál sín náði baráttan fyrir almennum
rettindum kvenna ekki að festa sig í sessi í gamla bændasamfélag-
inu.61 Auk kvenfélagsins Daggar voru starfandi á Eskifirði Verka-
kvennafélagið Framtíð sem stofnað var 1918 og starfaði til 1971 þegar
þnð sameinaðist Verkamannafélaginu Árvakri,62 kvenfélag kirkjunn-
ay °g Flafrún, kvennadeild Slysavarnarfélags Eskifjarðar, en Anna
tók nokkurn þátt í störfum Hafrúnar.
Á Eskifirði fæddust börn þeirra þrjú: Þorsteinn, f. 22.11.1940, lög-
fræðingur, Ásdís, f. 30. 6. 1943, kennari, félagsfræðingur og leikkona
°g Anna, f. 30.10.1948, leikskólastjóri. „Einhverjar bestu minningar
minar úr bernsku tengjast því að sofna út frá hljóðskrafi foreldra
miuna um jafnréttismál og önnur mál innan úr svefnherberginu,“