Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.2000, Side 133

Andvari - 01.01.2000, Side 133
ANDVARI SAMFERÐA í SÓKN TIL SJÁLFSTÆÐIS 131 kveikja áhuga McGills á íslandi. Af heimildunum má hins vegar ráða, svo ekki verður um villst, að Snæbjörn var frá upphafi helsti tengiliður Skotans við ísland.19 Snæbjörn var mikill áhugamaður um Bretland og breska menningu. Hann þýddi fjölda enskra bóka yfir á íslensku og sendi frá sér enska kennslubók í nútímaíslensku, sem margoft var endurútgefin. Snæbjörn hafði haldið í víking að afloknu gagnfræðaprófi og stundaði nám við Central Labour College í London um skamma hríð árið 1912 og þangað sneri hann aftur árið 1914 en starfaði síðan sem þýðandi í ráðuneyti í London á árun- um 1916-1919. Þá kom Snæbjörn heim og vann í Stjórnarráðinu 1920-1925 ásamt því sem hann ritaði greinar í íslensk blöð og tímarit.20 Að áeggjan Boga Th. Melsted sagnfræðings stofnaði Snæbjörn The English Bookshop (Bókaverslun Snæbjarnar) í Reykjavík árið 1927 sem hann rak um áratuga skeið, auk þess sem hann vann sem löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandir1 Snæbjörn getur McGills fyrst í grein sem hann skrifaði í Vísi 1. júní 1921, einmitt um það leyti sem McGill sté fyrst fram á ritvöllinn. Vakti Snæbjörn þar athygli á skoska mánaðarritinu Liberty, sem hann hafði þá komist í kynni við, „. . . með því að það hefir tekið fyrir nú síðustu mánuðina að verja töluverðu rúmi undir íslensk efni, en því er eðlilega ekki að venjast um erlend blöð.“ í greininni segir Snæbjörn ennfremur: Að þessu blaði, sem hér getur, standa einungis skoskir menn og írskir, og einn þeirra, ungur sagnfræðingur írskur, Alexander McGill, hefir mjög mikinn áhuga fyrir sögu okkar og bókmenntum. Það er hann, sem getið hefir íslands í blaðinu. í aprflblaðinu í vetur var löng grein um ísland og írland, og var það samanburður á sögu landanna, en sami höfundur hefir einnig ritað litla bók um það efni og mun hún nú vera um það leyti að koma út. í maíblaðinu var grein er hann nefndi „The Resurrection of Ice- land“ og segir frá stjórnmálabaráttu okkar. Er lofað áframhaldi af henni í júníblað- inu. Síðar mun hann hugsa sér að rita rækilega um þessi efni og önnur íslensk í tíma- rit, sem í ráði er að stofna í Glasgow og sem hann ásamt öðrum manni á að verða rit- stjóri fyrir.22 McGill getur Snæbjarnar fyrst í grein í tímaritinu Liberty þetta sama sumar en Liberty var gefið út um tveggja ára skeið í Glasgow (desember 1919 - ðesember 1921). Þar vitnar hann m. a. í bréf sem honum hafði borist frá Snæbirni.23 í framhaldinu hefur McGill að öllum líkindum sent Snæbirni eintak af bók sinni The Independence of Iceland. A Parallel for Ireland því snemma í júlí birtist ritdómur um hana í Vísir4 Ekki er ósennilegt að Snæbjörn hafi sjálfur skrifað dóminn en enginn er skrifaður fyrir honum."5 í ritdómnum er McGill þakkað fyrir velvild hans í garð Islendinga og tekið er fram að lesendur Vísis eigi að þekkja höfundinn því hans hafi áður verið getið í blaðinu. „Mun hann vera af fátækum kominn,“ segir í rit- dómnum, „en hefir með dugnaði og fágætum gáfum rutt sér svo braut, að
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156
Side 157
Side 158
Side 159
Side 160
Side 161
Side 162
Side 163
Side 164
Side 165
Side 166
Side 167
Side 168
Side 169
Side 170
Side 171
Side 172
Side 173
Side 174
Side 175
Side 176
Side 177
Side 178
Side 179
Side 180

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.