Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2000, Page 153

Andvari - 01.01.2000, Page 153
ANDVARI SKÁLDSKAPUR OG SAGA 151 saman frásagnir þeirra Aðalgeirs og Páls á skilnaðarhófinu til heiðurs Hall- dóri Einarssyni árið 1835, þar sem kvæði Jónasar «Vísur Islendinga» var sungið í fyrsta skipti. Aðalgeir lætur sér nægja að greina frá stað og stundu, kvæðunum sem sungin voru og lagboðanum að vísum Jónasar. Undir lokin Ieyfir hann sér þó þann sjaldgæfa munað að lýsa því hvernig «söngurinn barst út um gluggana á Hjartakershúsum og út í húm sumarnæturinnar þar sem hann blandaðist þyt í laufi og fuglaklið» (162). Páll rekur hins vegar á ýtarlegan hátt leið íslensku veislugestanna út úr borginni að Hjartakershús- um, þar sem þeir stigu inn «örlítið reikulir í spori eftir skröltið með vagnin- um en líka hýrgaðir af staupum» (134). Síðan tekur við allnákvæm og skemmtileg veislulýsing, sem þó er tæpast raunsönn, frásögn af því þegar Jónas kveður sér hljóðs með vísum sínum og aðrir gestir taka undir: . . . fyrsta erindið er nokkuð hikandi en svo syngja menn með vaxandi styrk og öryggi með hámarki í lokin. Hvflíkur veislusöngur, hvflíkt veislukvæði! Menn kunna sér ekki læti, harðgerðustu menn fá tár í augun og allt kvöldið vilja gestirnir syngja kvæðið og á heimleiðinni í vögnunum ómar söngurinn um strætin og ætlar aldrei að þagna. (134) Með slíkum tilbúnum sviðsetningum framkallar Páll bæði víðfeðma, heil- steypta og furðu lifandi mynd af skáldinu Jónasi og samferðamönnum hans, og ber síst að lasta það. Fyrir kemur hins vegar að lesendur standa eftir með ærið blendna tilfinningu fyrir «staðreyndum» og «raunveruleika», og ekki bætir úr skák að höfundur gerir enga grein fyrir ritunarhætti sínum í formála eða eftirmála. Einhverjir kynnu jafnvel að spyrja: Hvað vitum við með fullri vissu um þann Jónas Hallgrímsson sem rís af spjöldum ævi- sögunnar? Að hve miklu leyti er hann trúverðug ímynd samnefnds ein- staklings og að hve miklu leyti skáldaður texti Páls Valssonar? Það eykur enn á óvissuna í þessum efnum að ævisagan er öðrum þræði ofin úr kveð- skap skáldsins sjálfs, og þá einkum þar sem aðrar og betri heimildir skortir. Einna skýrast kemur þetta fram í lýsingunni á æskuárum Jónasar og systkina hans á bænum Hrauni í Öxnadal, en þar er orðaforðinn að stórum hluta sóttur í ljóðið «Dalvísu» sem skáldið orti undir lok ævinnar, - ef til vill til þess að sýna hið órofna samhengi í æviferli hans, að bernska hans bar með sér frjókorn síðari tíma blóma og að líf hans var ljóð og ljóðið líf: Systkinin alast [. ..] upp undir brattri hlíð Landafjalls, undir fífilbrekku, gróinni grund, þar sem vaxa fjallagrös og bláir og tærir bunulækir leika um grösuga hlíð með berjalautum. Á móti gnæfa hnúkafjöllin himinhá, og hæst ber Hraundranga upp af bænum á Hrauni. Petta er sæludalur, sveitin best. (10) Ekki er ósennilegt að þessi lýsing í upphafi bókarinnar komi til með að móta nokkuð viðhorf lesenda til Jónasar. Hún myndar líka afar sterka and- stæðu við «paradísarmissinn» sem varð skömmu síðar þegar faðir Jónasar
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.