Andvari

Volume

Andvari - 01.01.2000, Page 157

Andvari - 01.01.2000, Page 157
ANDVARI SKÁLDSKAPUR OG SAGA 155 skandinavismans hafði tekið gagngerðum breytingum frá 5. áratugnum til þess tíma þegar Ibsen skrifaði Pétur Gaut og Grímur Búarímurl Eins og rit Svövu er bók Sveins Yngva í raun og veru safn allmargra sjálfstæðra ritgerða sem þó hafa sameiginlegan þráð, beinast «annars vegar að viðtökum fornbókmennta og hins vegar að þætti sögunnar í íslenskri rómantík» (13). Sveinn Yngvi segist skoða íslenska rómantík «í víðu sam- hengi», enda spannar hugtakið rómantík í meðförum hans bæði fjölbreyti- lega texta og alllangt tímaskeið íslenskrar bókmenntasögu, a. m. k. árin frá 1830 til 1880. Hugmyndir sínar um rómantík byggir hann aðallega á al- kunnri greiningu René Welleks á evrópskum skáldskap frá fyrstu áratugum 19. aldar, en auðgar hana þó með ýmsum atriðum sem varða íslenskar bók- menntir sérstaklega. í því samhengi staldrar hann lengst við það sem hann sér sem einn «meginþátt í rómantíkinni: sambandið við miðaldir» (19). Þetta atriði má reyndar skoða sem gildan þátt í aðferðafræðilegri uppi- stöðu flestra sem fjallað hafa um «íslenska rómantík» hin síðari ár, m. a. Svövu Jakobsdóttur, enda styðst það við upphaflega merkingu hugtaksins rómantíkur. ísland og umheimurinn Öll þau rit sem hér er rætt um hafa að meira eða minna leyti sögulegt markmið, þ. e. að lýsa, greina og túlka 19. öldina í íslenskri (bókmennta) sögu. Sem slík eru þau hluti af um það bil eitt hundrað ára gamalli ritunar- hefð hér á landi, hefð sem áhrifamiklir stjórnmála- og menningarfrömuðir eins og Jón Jónsson Aðils, Sigurður Nordal, Jónas Jónsson frá Hriflu og Halldór Laxness áttu drjúgan þátt í að móta, að nokkru leyti sem beinir þátttakendur í þeirri atburðarás sem þeir greindu frá og oft er kennd við þjóðernisvakningu, sjálfstæðisbaráttu og endurreisn íslenskrar menningar. Allir hafa þessir höfundar því átt auðvelt með að samsama sig þeim per- sónum 19. aldar sem þeir fjölluðu um og gera hugmyndir þeirra og mark- mið að sínum. Um leið er augljóst að þeir notuðu 19. öldina á meðvitaðan hátt sem vopn í stjórnmála- og menningarbaráttu eigin samtíma. Þetta kemur vel í ljós þegar orðfæri þeirra og röksemdafærsla eru skoðuð. Mál- flutningur þeirra einkennist t.d. af stöðugum samanburði «jákvæðra» og «neikvæðra» andstæðna: íslenskur - útlendur, þjóðlegur - óþjóðlegur, frelsi - ófrelsi, menning - menningarskortur. Inn í þessi andstæðupör fléttast enn fleiri andstæður, m. a. alþýða - yfirvöld, sveit - bær og bændur - embættis- menn.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.