Andvari - 01.01.2005, Qupperneq 17
andvari
ÞÓRARINN BJÖRNSSON
15
ekki settum við það fyrir okkur, þótt við þyrftum að fara fótgangandi
til Akureyrar vorið 1922 og aftur 1923 til að þreyta próf upp í 2. og
3. bekk skólans. Er þó sú vegalengd um 140 km og yfir tvær erfiðar
heiðar að fara.“6
Þórarinn Björnsson sat því aðeins einn vetur sem reglulegur nem-
andi í skólanum, veturinn 1923-1924, og lauk um vorið gagnfræða-
prófi, hæstur 39 gagnfræðinga sem tóku próf það vor „og stóð þá ekki
til að námsbrautin yrði lengri. En Sigurður skólameistari mun fljótt
hafa séð hvað í sveininum bjó og eggjaði hann til frekara náms,“ eins
og Guðmundur Arnlaugsson, fyrrum rektor, segir í minningargrein um
Þórarin.7
Meðal frændfólks og afkomenda Þórarins Björnssonar gengur sú
sögn að eftir gagnfræðapróf hafi hann átt að taka við búi á föðurleifð
sinni, en faðir hans var þunglyndur og lét af búsforráðum sama árið
og Þórarinn lauk gagnfræðaprófi. Guðrún Hallgrímsdóttir, móðir Þórar-
ins, veiktist um þetta leyti af berklum og var á Vífilsstöðum um skeið.
Voru hjónin Bjöm Stefánsson [1875-1945] frá Þórunnarseli og kona
hans Kristín Hallgrímsdóttir [1890-1944] frá Undirvegg skráð fyrir
búi á Víkingavatni árin 1924-1938. Árið 1929 tók Guðrún Hallgríms-
dóttir aftur við hluta jarðarinnar og bjó þar með ráðsmanni og Sveini
syni sínum til ársins 1944 að hann tók við búi á Víkingavatni þar sem
hann bjó til 1980, eins og áður hefur komið fram. Sagan segir að Sig-
urður skólameistari hafi gert ferð sína austur að Víkingavatni sumarið
1924 og hitt að máli Guðrúnu Hallgrímsdóttur og talið hana á að senda
son sinn aftur til Akureyrar til náms og leysa hann undan kvöð hins
gamla óðalsréttar að elsti sonur tæki við búi.
Hvað sem rétt kann að vera í þessari sögn, er ljóst að Sigurður
skólameistari vildi tryggja sér starfskrafta Þórarins Björnssonar, eins
°g síðar er vikið að. Orð Bjöms Þórarinssonar í Kflakoti, að þeir
frcendur hafi ákveðið að húa sig undir að ná gagnfrœðaprófi, og orð
Guðmundar Amlaugssonar um, að ekki hafi staðið til að námsbraut
Þórarins Björnssonar yrði lengri, gætu stutt sögnina um að Þórami
Björnssyni hafi verið ætlað að taka við búi á Víkingavatni 1924. Ýmis
ummæli Þórarins sjálfs benda einnig til þess, að hugur hans hafi staðið
hl þess að verða bóndi, og sums staðar gætir eftirsjár og saknaðar, jafn-
vel samviskubits að hafa yfirgefið sveitina, enda segir einn af nánustu
vmum Þórarins og samstarfsmönnum við Menntaskólann á Akureyri,
dr. Halldór Halldórsson [1911-2000], síðar prófessor: