Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2005, Blaðsíða 34

Andvari - 01.01.2005, Blaðsíða 34
32 TRYGGVI GÍSLASON ANDVARI Og við skólastjórn sína beitti hann oft og einatt aðferðum, sem fáum öðrum mundu henta. Þórarinn setti sér þegar í upphafi að stjóma skólanum í anda Sig- urðar, og þetta var í sjálfu sér góður ásetningur. Hitt efa ég, að tveir menn geti nokkru sinni stjómað í sama anda, allra síst á tímum örra breytinga og endur- mats bæði í fræðilegum og siðferðilegum efnum. Þórarinn hafði, eins og fyrir- rennari hans, mikla trú á því, að skólinn gæti siðbætt nemendur, og sennilega er hverjum skólastjóra þessi trú nauðsynleg. En um það eru þó skiptar skoðanir, hvort slík siðbæting geti - á þessu aldursskeiði - náð lengra en til ytra borðs- ins, að hún geti snert kjarna persónuleikans. [...] Mér virtist Þórarinn Björns- son ekki vera það, sem kallað er athafnamaður - ég á við þá manngerð, sem hefir gaman af að vasast í framkvæmdum. Hann hafði meira yndi af að skilja en framkvæma. Hann gat velt fyrir sér viðfangsefnum og séð þau frá mörgum hliðum. En stjórnandi stórrar stofnunar getur ekki leitt hjá sér framkvæmdir. Þetta var Þórarni Björnssyni ljóst og vann framkvæmdastörfin af sömu alúð og annað, sem varðaði embætti hans, þótt þau væru eðli hans fjarlægari.47 Víða í skólaslitaræðum sínum ávarpar hann nýstúdenta og gefur þeim einkunn og viðhefur þá sömu ummæli um alla, eins og Sigurður skóla- meistari hafði gert í ræðum sínum. Ymsir nemendur tóku þetta óstinnt upp, einkum þeir sem sátu undir ámælum sem þeir töldu sig ekki eiga skilið. En þetta var stíll þessa tíma. „[...] ég hefi þóst finna það hjá mörgum ykkar í vetur, ungu stúdentar, að þið vilduð vel. Fyrir það kann skólinn ykkur einlæga þökk. En til þess að vera hreinskilinn, verð ég þó að segja ykkur, og hafði raunar ætlað að gera það fyrr, að einu sinni í vetur fannst mér ykkur bregðast ofurlítið bogalistin [...] og vil ég taka það fram, að ég tala um þetta algerlega þykkjulaust og án minnsta kala til nokkurs ykkar.“48 Við skólaslit 17. júní 1958 sagði Þórarinn Björnsson: „Talið er, að skólum hætti nokkuð til að vekja andlyndi, og þið hafið ekki alveg sloppið við það, stúdentar góðir. En það hefir ekki gefist ykkur vel, og það hefir heldur ekki gefist skólanum vel, og það mun hvergi vel gefast, því að það er í ætt við niflheim og þokuna, sem byrgir sólina. Varið ykkur á andlyndinu. Látið það ekki spilla sólarsýn ykkar.“49 Orðin um andlyndi - mótþróa eða gagnrýni nemenda - áttu að sjálf- sögðu ekki við um allan stúdentshópinn heldur aðeins fáa. í hópnum vorið 1958 voru 52 stúdentar. Af þeim hlutu fimm ágætiseinkunn á stúdentsprófi, sem aldrei hafði gerst áður í 30 ára sögu skólans - og hefur raunar aldrei gerst síðan. Sjö úr hópnum urðu síðar kennarar við skólann og hefur enginn árgangur, sem frá skólanum hefur farið, getið af sér fleiri kennara en þessi árgangur, og einn úr þessum andlynda
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.