Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2005, Blaðsíða 78

Andvari - 01.01.2005, Blaðsíða 78
76 GUÐRÚN LÁRA PÉTURSDÓTTIR OG MARÍA GESTSDÓTTIR ANDVARI að bættum kjörum fólks svo það fái notið verka hans og annarra listamanna þegar striti dagsins er lokið“ (205). Það var ekki aðeins með skrifum sem Halldór Laxness vann að þessu mark- miði sínu. Hann var mjög meðvitaður um ímynd sína út á við allt frá unga aldri og í ævisögunni eru nefnd nokkur dæmi um það. Þar segir meðal annars frá frétt í Morgunblaðinu, sem birtist árið 1926, um að skáldið væri komið til landsins eftir dvöl erlendis og að Reykvíkingar hafi séð hann á rölti um bæinn með áberandi gleraugu og barðastóran hatt. Halldór Guðmundsson bætir því við að það tilheyri „því sem nú yrði kallað ímynd að sjást og vekja athygli í sínum litla heimabæ, og láta þó eins og ekkert [sé]. Listamaður í markaðssamfé- lagi er ekki bara skapandi hugsuður, hann er líka sinn eigin auglýsingameistari, ásýndin skiptir miklu og Halldór vissi það vel“ (192). Með því að vera áber- andi í bæjarlífinu, sýna sig og sjá aðra, vakti hann athygli á ritstörfum sínum. Honum var einnig ljóst að til að ná frama þyrfti hann að helga sig ritstörfum alfarið. Halldór Guðmundsson telur það eitt merki um atvinnumennsku skálds- ins hversu meðvitaður hann var um markaðs- og kynningarmál (401). Hann kom sér í sambönd við útgefendur erlendis og var duglegur að minna á sig. I ævisögunni eru fleiri dæmi nefnd og segir meðal annars: í minniskompu frá 1933 má sjá nokkra punkta sem Halldór hefur skrifað hjá sér á dönsku líktog svör við spumingum í viðtali. Af punktunum er ljóst að þama er Halldór byrjaður að æfa sig í því sem varð sérgrein hans í viðtölum, að svara svolítið út úr og helst ólíkindalega en þó þannig að munað verði eftir. Hann vill vekja athygli á sér með sterku orðalagi en ekki hleypa viðmælandanum of nálægt sér. I þeim anda skrifar hann á dönsku: „Ég les yfirhöfuð ekki bækur“ og: „ég hef lært að skrifa af fullu fólki, geðsjúk- lingum og landshomaflökkurum" (342-343). Með sanni má segja að honum hafi tekist það ætlunarverk sitt að vera eftirminnilegur og eru mörg tilsvör hans þekkt á meðal þjóðarinnar. Af ofangreindu má sjá að Halldór Laxness byrjaði snemma að móta opinbera persónu sína eftir hugmyndum sínum um hvemig rithöfundar ættu að vera. Æviáætlunin er til staðar og hann er farinn að lifa eftir henni. Samkvæmt kenningum Paul Ricoeur eiga sér öðru hvoru stað atburðir, nokkurs konar „slys“, sem eru ekki í samræmi við æviáætlunina og brjóta upp heildarmynd ævinnar, sem hver manneskja ætlar sér að skapa.4 Halldór Laxness skrifaði fjórar minningabækur á áttunda áratugnum, / túninu heima, Úngur eg var, Sjömeistarasöguna og Grikklandsárið. Bækumar fjalla um æskuár hans og fyrstu spor á rithöfundarferlinum. Þessi bókaflokkur er í raun eina sjálfsævi- saga Laxness og segja má að með honum hafi hann gert sitt til að leiðrétta þau „slys“ sem urðu á hans yngri árum. Með þessu er ekki átt við að hann hafi verið að breiða yfir misgjörðir og fornar syndir, heldur skapa fagurfræði- lega heild úr lífi sínu.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.