Andvari

Árgangur

Andvari - 01.01.2005, Blaðsíða 74

Andvari - 01.01.2005, Blaðsíða 74
72 AÐALGEIR KRISTJÁNSSON ANDVARI verið iðkuð meðal skólasveina, t.a.m. í Skálholti og á Bessastöðum brugðu skólasveinar fyrir sig að leika og semja leikþætti og Gísli Thorarensen og Magnús Grímsson skrifuðu leikrit á dönsku og íslensku. Einn skólasveina - Pétur Guðjónsson - braut blað í íslenskri tónlistarsögu þegar hann varð organleikari við dómkirkjuna í Reykjavík árið 1840. Það var tímamótaár í íslenskri kirkjutónlist og tónlistariðkun á Islandi. Bessastaðastúdentar lögðu sig sumir hverjir eftir náttúruvísindum og eitt merkisrita frá þeirra hendi er Almenna landaskipunarfræðin sem kennd er við Gunnlaug Oddsen dómkirkjuprest. Auk hans lögðu þeir Grímur Jóns- son amtmaður og Þórður Sveinbjömsson þar hönd að verki. Ritið kom út á vegum Bókmenntafélagsins á árunum 1821-1827. Einnig fóru gamlir Bessa- staðastúdentar rannsóknarferðir til Islands, t.a.m. Ögmundur Sigurðsson sem kannaði mókolalög í Skagafirði. Frægari miklu eru rannsóknir Jónasar Hall- grímssonar sem áttu að vera undanfari íslandslýsingar þeirrar sem hann dó frá, og Benedikt Gröndal fékkst við náttúrufræði alla ævi. Þorleifur Guðmundsson Repp lét sér fátt mannlegt óviðkomandi. Hann var frábær tungumálagarpur, skrifaði lærða grein um lögfræði - Trial by Jury - o. fl. lögfræðilegs efnis. Þá starfaði hann að gerð enskrar orðabókar. Hann fékkst við jafn ólík viðfangsefni og málvísindi og eðlisfræði þar sem hann háði hildi við ekki ómerkari mann en H. C. 0rsted. Þá lét hann stjómmál til sín taka, þýddi íslensk fomrit yfir á latínu og er þó fátt eitt talið. X Kynslóð Bessastaðastúdenta skipaði sér í fylkingarbrjóst í sjálfstæðisbarátt- unni. Að vísu voru hvorki Baldvin Einarsson né Jón Sigurðsson brautskráður frá Bessastöðum, en Jónas Hallgrímsson, Brynjólfur Pétursson og Konráð Gíslason vom allir Bessastaðastúdentar. og einnig prestamir Tómas Sæmunds- son og Hannes Stephensen, Jón Guðmundsson ritstjóri, Gísli Hjálmarsson læknir, Gísli Brynjúlfsson yngri og aðrir þeir, sem stóðu að útgáfu Fjölnis, Nýrra félagsrita og Norðurfara og lögðu þar sitt lóð á metaskálamar. Hér má bæta því við að hin íslenska embættismannastétt var að verulegum hluta skipuð fyrrverandi skólasveinum Bessastaðaskóla frá því um miðbik aldarinnar og fram undir aldarlok. Brynjólfur Pétursson og Oddgeir Steph- ensen voru í áhrifastöðum í danska stjómkerfinu. Konráð Gíslason og Vil- hjálmur Finsen nutu mikils álits sem vísindamenn hvor á sínu sviði. Annar sem prófessor við Hafnarháskóla og hinn sem prófessor og dómari við Hæsta- rétt Danmerkur, svo að eitthvað sé nefnt. Nýmæli erlendis frá skutu oftar en ekki upp kolli í Bessastaðaskóla. Þannig var um söfnun íslenskra þjóðfræða sem rekja mátti til Grimmsbræðra í Þýskalandi sem hófu útgáfu slíkra bókmennta á öðrum tug 19. aldar. Árið
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132
Blaðsíða 133
Blaðsíða 134
Blaðsíða 135
Blaðsíða 136
Blaðsíða 137
Blaðsíða 138
Blaðsíða 139
Blaðsíða 140
Blaðsíða 141
Blaðsíða 142
Blaðsíða 143
Blaðsíða 144
Blaðsíða 145
Blaðsíða 146
Blaðsíða 147
Blaðsíða 148
Blaðsíða 149
Blaðsíða 150
Blaðsíða 151
Blaðsíða 152
Blaðsíða 153
Blaðsíða 154
Blaðsíða 155
Blaðsíða 156
Blaðsíða 157
Blaðsíða 158
Blaðsíða 159
Blaðsíða 160

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.