Andvari - 01.01.2005, Blaðsíða 95
andvari
AÐ HORFAST í AUGU VIÐ TÓMIÐ - EÐA TRÚA
93
dugir heldur að setjast að í borg þar sem vitstola konur í gylltum kerrum æða um með
menn í aktygjum. Borg Nietzsches, borg Karls Marx, borg Adolfs Hitlers eða annarra
falsspámanna sem alltaf munu upp vekjast á meðan maðurinn þvælist án stefnu og
stjómar um úthöfin, völundarhúsin eða hina eyðihvítu sanda lífsins.14
Þetta er vissulega niðurstaða, en þetta er ekki niðurstaða um ævi Jóhanns Sig-
urjónssonar heldur forsenda sem höfundur gefur sér og mælir síðan ævi og
starf Jóhanns við. Ég geri ráð fyrir því að fleiri en ég hrökkvi við að sjá ein-
hverja áhrifamestu hugsuði nítjándu aldar hér setta formálalaust í hóp með
grimmasta einræðisherra tuttugustu aldar og til að réttlæta það þarf meiri
heimspeki og meiri hugmyndasögu en rúmast í ævisögu Jóhanns, hversu góð
sem hún er að öðru leyti.
Það getur verið áhugaverð tilgáta að Jóhann hafi undir lok ævi sinnar snúið
frá þeirri tómhyggju og trúleysi sem hann aðhylltist á tímabili en fyrir því eru
engar heimildir að því er best verður séð. Og þótt Jón Viðar sé sannfærður
um gildi kristindómsins og finnist allar aðrar niðurstöður en hans eigin í því
efni grunnfæmar og bamalegar, þá er það einfaldlega ekki óumdeild stað-
reynd og engar heimildir um það að Jóhann Sigurjónsson hafi verið búinn að
sjá ljósið áður en hann kvaddi þennan heim.
TILVÍSANIR
1 Jón Viðar Jónsson: Kaktusblómið og nóttin. Um œvi og skáldskap Jóhanns Sigurjónssonar.
Hólar. Akureyri 2004, 13.
' Jón Viðar Jónsson: Kaktusblómið og nóttin, 44.
1 Jón Viðar Jónsson: Kaktusblómið og nóttin, 200.
4 Sjá um þetta: Kristján Jóhann Jónsson: „Sá sterkasti og veikasti meðal niannanna." Tímarit
Máls og menningar 1/66 (2005), 100-103.
5 María Kristjánsdóttir: „Hvaða gagn er að Freud?“ Morgunblaðið 11.12.2004.
6Sven Mpller Kristensen: Dansk litteratur 1918-1952. Ejnar Munksgaard. Kaupmannahöfn
1953, 19.
7 Sjá um þetta: Jón Yngvi Jóhannsson: „Jpklens Storm svalede det kulturtrætte Danmarks
Pande. Um fyrstu viðtökur dansk-íslenskra bókmennta í Danmörku.“ Skírnir 175. (vor
2001), 33-66.
8 María Kristjánsdóttir: „Hvaða gagn er að Freud?“
Jón Viðar Jónsson: Kaktusblómið og nóttin, 71-72.
Jón Viðar Jónsson: Kaktusblómið og nóttin, 211.
Sbr. Jón Viðar Jónsson: „Loftur á leiksviðinu. Galdra-Loftur Jóhanns Sigurjónssonar á
íslensku leiksviði.“SÆi/-w> 154 (1985), 24-76.
'Helge Toldberg: Jóhann Sigurjónsson. Rasmus Fischer Forlag. Kaupmannahöfn 1965,
112.
' Jón Viðar Jónsson: Kaktusblómið og nóttin, 257.
Jón Viðar Jónsson: Kaktusblómið og nóttin, 286-87.