Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1933, Page 14

Andvari - 01.01.1933, Page 14
10 Klnmens Jónsson ráðherra. Andvari þinganefnd um fjármál 1911. Sú nefnd kom fram með tillögur um einkarétt og einkaleyfi til kolasölu og stein- olíuverzlunar hér á landi og lagði til, að undirbúin yrði einkasala á tóbaki, en ekki náðu þær tillögur þá fram að ganga. Hann sat 1908 — 1914 í bæjarstjórn Reykjavíkur. Landritaraembættinu var þannig háttað, að ekki er gott að sjá, hve mikil bein áhrif landritarinn hafði á stjórnarfarið, en þau hljóta að hafa verið allmikil, þótt mismunandi væru, eftir því hver var ráðherra. Aðal- störfin voru þó fólgin í því, að landritarinn var eins konar fulltrúi ráðherrans og yfirskrifstofustjóri. Flest- öll mál gengu því í gegn um hendur hans. í fjarveru og forföllum ráðherrans varð landritarinn að gegna störfum hans. Þannig var Klemens umboðsmaður ráð- herra á alþingi 1907, 1909, 1913 og 1914. Líklega mun Klemens þó ekki hafa unað sér vel við landritaraembættið. Hann varð að leggja niður þing- mennsku, því að hún þótti ekki geta samrýmzt embættinu. Mun Klemens ekki hafa kunnað vel þeirri hlutleysis- afstöðu í stjórnmálunum, er embættinu fylgdi, enda var hún eigi eðlileg skapi hans. Þegar ráðherrum var fjölgað, var landritaraembættið Iagt niður, og þann 4. jan. 1917 veik Klemens úr emb- ætti eftir 13 ára þjónustu. Næstu árin fekkst hann einkum við ritstörf, en gaf sig lítið að opinberum málum. Þá má geta þess, að ár- ið 1918 var hann sendur til Lundúna, ásamt Richard Thors og Eggert Briem til þess að semja við Englend- inga um verzlun Islendinga við þá. Hann var kosinn í orðunefnd fálkaorðunnar 1921 og aftur 1926. Árin 1925—1929 var hann fulltrúi í bankaráði íslandsbanka. Þá var hann einnig í nokkur ár formaður fossafélagsins

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.