Andvari - 01.01.1933, Qupperneq 14
10
Klnmens Jónsson ráðherra.
Andvari
þinganefnd um fjármál 1911. Sú nefnd kom fram með
tillögur um einkarétt og einkaleyfi til kolasölu og stein-
olíuverzlunar hér á landi og lagði til, að undirbúin yrði
einkasala á tóbaki, en ekki náðu þær tillögur þá
fram að ganga. Hann sat 1908 — 1914 í bæjarstjórn
Reykjavíkur.
Landritaraembættinu var þannig háttað, að ekki er
gott að sjá, hve mikil bein áhrif landritarinn hafði á
stjórnarfarið, en þau hljóta að hafa verið allmikil, þótt
mismunandi væru, eftir því hver var ráðherra. Aðal-
störfin voru þó fólgin í því, að landritarinn var eins
konar fulltrúi ráðherrans og yfirskrifstofustjóri. Flest-
öll mál gengu því í gegn um hendur hans. í fjarveru
og forföllum ráðherrans varð landritarinn að gegna
störfum hans. Þannig var Klemens umboðsmaður ráð-
herra á alþingi 1907, 1909, 1913 og 1914.
Líklega mun Klemens þó ekki hafa unað sér vel við
landritaraembættið. Hann varð að leggja niður þing-
mennsku, því að hún þótti ekki geta samrýmzt embættinu.
Mun Klemens ekki hafa kunnað vel þeirri hlutleysis-
afstöðu í stjórnmálunum, er embættinu fylgdi, enda var
hún eigi eðlileg skapi hans.
Þegar ráðherrum var fjölgað, var landritaraembættið
Iagt niður, og þann 4. jan. 1917 veik Klemens úr emb-
ætti eftir 13 ára þjónustu.
Næstu árin fekkst hann einkum við ritstörf, en gaf
sig lítið að opinberum málum. Þá má geta þess, að ár-
ið 1918 var hann sendur til Lundúna, ásamt Richard
Thors og Eggert Briem til þess að semja við Englend-
inga um verzlun Islendinga við þá. Hann var kosinn
í orðunefnd fálkaorðunnar 1921 og aftur 1926. Árin
1925—1929 var hann fulltrúi í bankaráði íslandsbanka.
Þá var hann einnig í nokkur ár formaður fossafélagsins