Andvari - 01.01.1933, Side 15
Andvari
Klemens Jónsson ráÖherra.
11
Títan hér á landi. Hlemens tók mikinn þátt í ýmsum
félagsskap. Má einkum geta þess, að hann starfaði
mikið fyrir Oddfellowregluna, og uar um langt skeið
æðsti maður hennar hér á landi.
Þótt Hlemens hefði nógum störfum að sinna við
sagnfræðirannsóknir og ýms önnur mál, þá mun hon-
nm þó hafa þótt tómlegt að vera embættislaus og kom-
inn út úr stjórnmálum. Hann tók því við atvinnumála-
ráðherraembættinu í ráðuneyti Sigurðar Eggerz 7. mars
1922. Kom þetta mörgum á óvart, því að Klemens hafði
um langt skeið verið utan flokka, og var almennt bú-
izt við, að hann mundi ekki taka þátt í stjórnmál-
am oftar.
Það voru sjálfstæðisflokkarnir á þingi og framsókn-
arflokkurinn, sem höfðu ráðið stjórnarskiptunum, en lítil
samvinna varð milli flokkanna, og tímarnir voru á ýms-
an hátt erfiðir, en annars er ekki enn þá hægt að
skrifa sögu þess ráðuneytis. Til þess liggja viðburðirnir
of nærri. Klemens gekk í framsóknarflokkinn og var
kosinn á þing í Rangárvallasýslu 1924, tuttugu árum
eftir að hann hafði lagt niður þingmennsku í Eyjafirði.
Hann sat á þingi til 1927. Frá 18. apríl 1923 til 22.
mars 1924 gegndi hann einnig störfum fjármálaráðherra,
en þá veik ráðuneytið úr völdum.
Eftir að Klemens hvarf af þingi, tók hann ekki þátt í
stjórnmálum, enda var þá heilsu hans tekið að hnigna,
en hann vann að ritstörfum, meðan heilsan leyfði.
Ritstörfin voru þriðji þátturinn í æfistarfi Klemens,
því að þótt hann um langt skeið gegndi hinum mikilvæg-
ustu embættum, þá er starf hans í þágu íslenzkrar sögu
og ættfræði ekki síður merkilegt. Hann átti ekki heldur
langt að sækja áhuga sinn á þeim fræðum, því að faðir
hans var alkunnur grúskari. Klemens byrjaði þegar í