Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1933, Page 19

Andvari - 01.01.1933, Page 19
A*dvari Klemens Jónsson ráðherra. 15 Klemens Jónsson war tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Þorbjörg Stefánsdóttir sýslumanns Bjarnarsonar. Þau giftust 6. júlí 1889. Hún dó 30. jan. 1902. Þau eignuðust fjögur börn. Lifir eitt þeirra, Anna, kona Tryggva Þórhallssonar fyrverandi forsætisráðherra. Síð- ari kona Klemens var Anna María Schiöth, dóttir Schiöths bankagjaldkera á Akureyri. Þau giftust 13. okt. 1908. Lifir hún mann sinn. Þau eignuðust tvö börn, og lifir annað þeirra, Agnar lögfræðistúdent í Reykjavík. Klemens hlaut heiðursmerki í ríkulegum mæli. Hann var stórriddari með stjörnu af fálkaorðunni, komman- dör fyrstu gráðu af dannebrog og dannebrogsmaður. Auk þess hafði hann þýzk, frönsk, hollenzk og portú- gölsk heiðursmerki. Klemens Jónsson var mikill vexti og rammur að afli. Hann var að öllu hinn höfðinglegasti ásýndum, og þótti mjög sópa að honum og hann vera yfirvaldslegri en al- mennt gerist. Er það haft eftir þýzkum ferðamönnum, er sáu hann, að hann líktist mest prússneskum liðsfor- ingja að útliti og framgöngu. Hann hafði sterka rödd og var hinn áheyrilegasti ræðumaður. Þegar Klemens var sýslumaður í Eyjafirði, samdi hann sig mjög að siðum bænda á ýmsan hátt, og lík- aði það vel. Hann var gleðimaður mikill og sló ekki hendinni á móti gæðum lífsins. Hann tók jafnan mik- inn þátt í veizlum og samkvæmum, en hann var þó fyrst og fremst sívinnandi starfsmaður. Síðasta árið er hann lifði, kom hann oft upp í landsbókasafn og sat þar við handritalestur tímum saman, en þá var hann svo farinn að heilsu, að hann varð að láta aka sér í vagni fram og aftur, og honum gekk erfitt að komast upp stigann í safnahúsinu, og varð oft að styðja hann. En sami var áhuginn; hann vann að rannsóknum sín-

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.