Andvari - 01.01.1933, Blaðsíða 21
Andvari
Fiskirannsóknir 1931—1932.
Skýrsla til stjórnarráðsins.
Eftir Bjarna Sæmundsson.
Fiskifræðistörf mín síðustu tvö ár hafa verið svipuð
og undanfarin ár: rannsóknarferðir, rannsóknir heima
fyrir, ritstörf, bréfaskriftir og ýmsar upplýsingar til manna,
utan lands og innan, eða aðstoð við fiskirannsóknir
Dana hér við land.
1. Ritstörf og rannsóknarferðir.
Aðalritstörf mín voru að semja bók um íslenzk spen-
dýr á landi og í sjó (íslenzk dýr II, Spendýrin), í lík-
ingu við bók mína um íslenzka fiska, er kom út 1926.
Byrjaði ég á samningu bókarinnar í apríl 1930 og lauk
henni að mestu á hálfu öðru ári. Var hún fullprentuð í
ágúst síðastl. — Að því leyti sem bók þessi fjallar að
miklu leyti um íslenzk sjóspendýr, seli og hvali, þá snertir
hún eigi svo lítið íslenzka fiskalíffræði, þar sem þessi
dýr hafa margvísleg áhrif á líf ýmissa fiska, ekki sízt
nytjafiskanna, og þeir aftur margir hverir eru all-þýð-
ingarmiklir fyrir þau. í bókinni er og skýrt frá ýmsu
því, sem ég hefi athugað viðvíkjandi lifnaðarháttum hvala
og sela og ekki hefir áður verið tækifæri til að birta á
einum stað, auk þess sem þar er skýrt frá all-mörgu
því, er síðari ára rannsóknir hafa leitt í ljós í líffræði
2