Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1933, Page 33

Andvari - 01.01.1933, Page 33
Andvari Fiskirannsóknir. 29 var, eða uppi á grunnbrúninni var mergð af svömpum, sem líktust kartöflum að lögun og stærð og aðrir flatir, sæköngulóm, mosakóröllum og polýpum, einstaka kuðunga- krabbar og kampalampi, 1 lítil flæðarmús, 1 stór ígulker lEchinus esculentus), sem annars er helzt að sjá við S- °9 SV-Ströndina, og nokkurar sæstjörnur. Annars voru samskonar botndýr í öllum hallanum og úti í álnum, einsog uppi á brúninni, nema lítið eða ekkert af svömp- um. — Af því sem sást af augnasíli (Rhoda) í fiska- •nögum, var það bert, að mikið var af því þarna, þótt þess yrði ekki vart við yfirborðið, því að það var stund- u>n alveg nýgleypt í ufsanum. Af rauðátu (Calanus) fékk ég oftast dálítið í háf, sem ég dró við yfirborð við skipshliðina og mikið af kísilþörungum, sem komnir voru í fullan blóma, og grugguðu sjóinn. Egg fann ég engin. Eftir 3 daga var fiskur farinn að tregast á þessum slóðum og kipptum vér því árla morguns 22. maí vest- Ur yfir álinn, yfir á Kólkugrunn og fiskuðum þar og í innanverðum Reykjarfjarðarál næstu 3 daga og öfluð- um vel, tíðast á 100—115 fðm., fengum 23—29 poka á dag í 10—15 dráttum, eða að jafnaði 2 poka í drætti, West 6-skift. Fiskurinn var í heild tekið líkur og á hinu svæðinu, langmest þorskur, nokkuð af stútungi og lítið eitt af smáþyrsklingi.1) Auk þess dálítið af ufsa og kiirlýsu og allmikið af miðlungskarfa og einstaka stórir !) Lottskeyfamaðurinn, Hilmar Norðfjörð, mældi all-mikið af þorski á ýmsum þessum svæðum, fyrir Árna Friðriksson, fiski- fræðing. Hefir Árni aldursákvarðað allan þennan fisk og birt út- komuna í skýrslu sinni til Fiskifélagsins 1931, bls. 64. Aðalútkom- an var sú, að allur þorrinn af fiskinum var 7—9 vetra og hinn allra-smæsti (kóðin) 2—3 vetra og mest af honum (og 4—5 vetra fiski) á Strandagrunni.

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.