Andvari

Årgang

Andvari - 01.01.1933, Side 44

Andvari - 01.01.1933, Side 44
40 Fiskirannsóknir. Andvari miður enn þá mjög ófullkomin og ítarleg rannsókn á þeim eitt af verkefnum framtíðarinnar. Allur þorrinn af hinum þroskaða þorski var útgotinn, einstaka, helst hængar, enn ógotnir eða gjótandi og sumir smáir. Einn þorskur hafði á sér Da-merki, sett á hann við Vestmanneyjar fyrir rúmum mánuði. Má af því ráða, að eitthvað, og ef til vill ekki svo fátt af þeiim þorski, sem þarna var kominn, hafi verið til hrygningar við suðurströnd landsins, þá um vorið. — Af ufsa var slæðingur, bæði stór- og miðlungs, troðinn af augnasíii, eins og þegar er tekið fram, en annars var ekkert frek- ara við hann að athuga. — Af ýsu var töiuvert, bæði á brúninni og í djúpinu; af stórýsu var fátt, fleira af kurlýsu, en lang-mest af smáýsu (tvæ—þreveturri) og veturgömlum ýsuseiðum (10 —15 cm); og ýsuseiðin voru ekki aðeins mörg hér, heldur einnig á miðunum syðra. Síðar varð þeirra vart í mergð í Faxaflóa og við Austfirði á »Dönu* (sbr. 11. tbi. Ægis 1932, og það sem sagt var hér að framan, bls. 27 neðanmáis). Það hefir auðsjáanlega verið mikið ýsuklak hér við land 1931, og ætti því á næstu árum að verða mikið af smá- ýsu, kurlýsu og síðar af stórýsu, ef þetta ungviði nær að vaxa upp án stórra affalla. Viðvíkjandi öðrum fiskum má geta þess, að slangur var af karfa, eins og vant er, mest miðlungs, og helzt þar sem dýpst var og botn harður. — Af s t e i n b í t var all-margt og fiskurinn af mesta dýpinu einkennilega Ijós á lit og einlitur (bar lítið á þverrákunum); má vera, að það hafi verið vegna myrkursins niðri á svo miklu dýpi. Steinbíturinn var yfirleitt bráðlifandi, þegar hann kom úr vörpunni og var oft sendur heim aftur hið fljótasta og er það lofsverð viðleitni togaramanna tii að bjarga því sem auðið er frá arðlausu drápi. —

x

Andvari

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.