Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1933, Page 54

Andvari - 01.01.1933, Page 54
/ 50 Fiskirannsóknir. Andvari í sfútungi, oeiddum úti í fióanum, fann ég sandsíli, og margt var af svartfugli, aðallega stuttnefju, að fiska eitlhvað við eyrina um morguninn, sem ég kom þangað. Geri ég ráð fyrir að það hafi verið sandsíli. Sandsíli er rnikið um á þessum slóðum, eins og eðlilegt er, þar sem svo mikill er skeljasandurinn, og eins er þar oft mikið af kópsíld og smárri millisíld í firðinum og svart- fuglinn, sem skotinn er þarna á veturna, kvað vera full- «r af smásíld, sandsíli og einhverri »átu*. í fyrra vor og í vor, er leið, safnaði Eyjólfur Sveinsson á Lamba- vatni fyrir mig »átu« úr svartfugls (lunda og stuttnefju) mögum; var í fiestum fuglanna eitthvert óþekkjanlegt mauk, en í nokkurum voru skoltar úr skera (Nereis) og í einum kvarnir úr spærling. Athuganir Dr. Tánings á þorskseiða-áti svartfuglsins á sumrin, undir Látra- bjargi, munu vera mörgum kunnar úr »Ægi«, 24. árg., bls. 213. >Dana« ætlaði að veiða veturgömul þorskseiði og seiði á 1. ári við Eyrarnar, meðan hún stóð þar við, en fekk lítið. — Við Vatneyrarbryggjuna sá ég dálítið af þorsk- og ufsaseiðum á 1. ári og veturgömlum ufsa- seiði, fyrsta daginn, sem ég dvaldi þar, en úr því ekki, en þar var að staðaldri margt af sandkola og einstaka skarkoli, smár. Einn daginn fór Ólafur með mig á bát sínum inn í Ósafjörð, en svo heitir vogur, sem skerst austur úr botni Patreksfjarðar — en ekkert sá ég þar af fiskaseiðum eða öðrum fiski, enda þótt auðvelt væri að sjá í botn þar með landinu, en þar var margt af æðarblikum í litaskiptum. A Vatneyri kynntist ég skipstjóranum á »GyIfa« (áður á »Leikni«), Jóhanni Péturssyni, ættuðum úr Hraunum syðra. Gat hann frætt mig um margt af langri reynslu. Á Vatneyri er allstór tjörn, sem eyrin hefir nafn af„

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.