Andvari - 01.01.1933, Síða 55
Andyari
Fiskirannsóknir.
51
^ ' 5 m djúp. í henni er mergð af vorflugum og horn-
sílum, sem flest virðast vera haldin af bandormasýki
(Fasciola). Ólafur konsúll lét fyrir nokkurum árum flytja
silung úr Sauðlauksdalsvatni (sjá skýrslu 1915, bls.
77) í tjörnina, en hann þrífst þar illa, verður all-stór,
et» er kvapkenndur og bragðlítill, vantar ef til vill hent-
u9t fæði og vatnið ekki svo »frískt« sem skyldi, ekkert
ofanjarðar útrennsli. Annars er slangur af urriða og
Weikju í firðinum og sýnir hann sig oft við lækjarósa.
Áll er þó nokkur í lækjum í Örlygshöfn og veiðir
einn hóndinn þar, Árni á Hnjóti, hann til matar og er
Það^ virðingarvert.
Ólafur lét gera hólma í tjörninni í hittiðfyrra, að
9amni sínu og verptu þar nú 6 æðarhjón og margt af
híu. En úr því að ég minntist á fugla, vil ég geta þess,
að samkvæmt upplýsingum frá kunnungum mönnum,
serstaklega Ólafi Þórarinssyni, verzlunarstjóra á Geirs-
eyfi og Eyjólfi Sveinssyni á Lambavatni, er fýllinn
að smá-færa út kvíarnar á skaganum vestan fjarðarins
°9 víðar vestra. Hann verpir nú töluvert í Látrabjargi,
e>nkum í því utanverðu, þar sem það fer að lækka og
er dálítið grasi gróið, og útrýmir svartfuglinum um leið.
Hann er líka kominn í Brekkuhlíð, fyrir innan Kefla-
vík. í Lambavatnsfjall (fyrir 12 árum), í Miðhlíðarfjall
a Barðaströnd (síðan um aldamót) og í Skorarkletta.
Svo er hann hinsvegar kominn í Bjarnarnúp og í Hníf-
ana, en fjölgar þar ekki; hann er mjög margur í Blakkn-
um og í núpunum inn með firðinum, inn að Hænu-
vík, verpir hann eitthvað, en er ekki í Tálknanum. Einnig
er hann og hefir verið lengi í Fuglbergi í Sléttanes-
fjalli, í Barðanum og í Hrafnaskálarnúp og Bjargi í
Onundarfirði. — Sumarið 1931 sá ég af »Esju« margt
®f fýl (sjáltsagt hundrað) sitja í grastó hátt uppi í hömr-