Andvari - 01.01.1933, Qupperneq 72
68
Á Arnarvatnsheiði.
Andvari
um veginn fara í fyrsía sinni, sjálfsagt að ríða um þessa
landskunnu lág. Frá Kalmanstungu tíi Vopnalágar er
nálægt þriggja tíma lestagangur. Þá tekur við Þorvalds-
háls; grýttur og gróðurlítill fláki, sem takmarkast af
Hallmundarhrauni að sunnan, en Norðlingafljóti að
norðan. Vfir hann er nálægt tveggja stunda lestaferð.
Nokkuð sunnar en á miðjum Þorvaldshálsi liggur ó-
ljós vegur norður að fljótinu frá aðalveginum. Þessi út-
úrgata heitir Núpdælavegur, og Núpdælavað, þar sem
vegurinn liggur yfir fljótið. Vegur sá liggur ofan í
Núpsdal í Miðfirði. Er sú leið kölluð Tvídægra. Þegar
Þorvaldshálsi lýkur, eftir nálægt fimm klukkustunda lesta-
ferð frá Kalmanstungu, verður Norðlingafljót þvert fyrir
veginum. Er nokkur lykkja þar á því, vegna beygju, sem
það tekur til vesturs fyrir austurendann á Þorvaldshálsi.
Þar er sæmilegt vað, sem heitir Norðlingavað. Þegar
yfir fljótið er komið, byrja Arnarvatnshæðir. Alla leið
frá byggð og þangað hækkar Iandið lítið eitt smátt og
smátt, en nú taka við Arnarvatnshæðir, og úr því verður
verður vegurinn meira á fótinn. Sést það bezt, ef til
baka er litið, að um leið og þessi vegur teygir mann
fjær og fjær öllum mannabyggðum, þá er hann líka
jafnt og stöðugt að lypta manni hærra og hærra. Norð-
lingafljót sýnir líka nokkuð glöggt þenna jafnlíðandi
halla, því að alstaðar rennur það með miklum straumþunga,
sem eykst þó að mun, þar sem það fellur fram sunn-
an megin við Arnarvatnshæðir; þá er það orðið til hægri
handar við veginn, frá því yfir það var farið á Norð-
lingavaði. Það heitir Hæðarsporður norðan megin fljóts-
ins, þar sem hæðirnar byrja. Fyrstu tvær klukkustund-
irnar, sem farið er austur Arnarvatnshæðirnar, liggur
vegurinn í nánd við Norðlingafljót og sumstaðar þétt
við það. Er þá landið bæði grýtt og gróðurlítið til