Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1933, Page 76

Andvari - 01.01.1933, Page 76
72 A Arnarvalnsheiði. Andvari manna, því að maiföng eru þar næg fyrir hendi, svo sem silungur, egg, fjallagrös, — enn fremur holta- og hvanna- rætur. Þá var líka auðvelt að taka álptir, er þær voru í sárum, eða með öðrum orðum: ófleygar eftir fjaðra- missi. Hallmundarhraun, sem liggur með fram allri Arn- arvatnsheiði, milli Norðlingafljóts og suðurjökla, hefir þó sekum mönnum fundizt öruggari griðastaður heldur en Arnarvatnsheiði, enda eru margar sagnir um seka menn, bæði fyrr og síðar, á þeim slóðum. Hefi ég á öðrum stað nokkuð skrifað um síðustu útilegumennina, sem þar héldust við. Það var á öðrum áratug 19. aldar, sem síðasta útilegumannasagan gerðist í Hallmundar- hrauni. Það var því ekki ástæðulaust, þótt útilegumanna- trúin lifði lengur fram eftir öldinni og auðtrúa unglingar hefðu nokkurn beyg af þeim stöðum, er slíkir atburðir höfðu gerzt fyrir skömmum tima. Þá var það enn siður, að hver bóndi úr nærliggjandi sveitum lét afla grasa á Arnarvatnsheiði. Voru þá jafnan rosknir og ráðnir menn leiðtogar í slíkum ferðum, sem töluðu kjark í hina ungu. í þessar grasaferðir var farið rétt fyrir sláttarbyrjun. Þá stóð allt í fegurstum sumar- blóma á háheiðum. Svanir, himbrimar og mikill fjöldi annarra vatnafugla syntu umhverfis hreiður sín og sungu sætt og yndislega, hver með sínu nefi. Lækirnir liðu fram silfurtærir og vökvuðu bakkablómin með sínum glitrandi daggarúða. Það gat því í sumarblíðunni orðið næstum himneskur unaður í þessari eyðilegu óbyggð, fyrir þau börn náttúrunnar, sem höfðu opin augu og eyru fyrir hennar miklu dýrð. Hvergi hefi ég lifað við jafnbreytilegt sumarveður sem á Arnarvatnsheiði. Þar veit ég dæmi til stórhríða í öllum sumarmánuðum, en þar hefi ég líka vitað svo mikinn lopthita eftir veturnætur, að frostlaust var um

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.