Andvari

Volume

Andvari - 01.01.1927, Page 34

Andvari - 01.01.1927, Page 34
32 Ðjarni Jónsson frá Vogi Andvari b. Fundurinn telur sjálfsagt, að Islendingar hafi sérstakan fána, og felst á tillögur Stúdentafélagsins um gerð hans. c. Fundurinn krefst þess, að þegnréttur vor sé íslenzkur. 2. Sökum þess, að alþingi var eigi rofið, þegar afráðið var að skipa samninganefnd í sjálfstæðismálinu, skorar fundurinn á alþingi og stjórn að sjá um, að nefndin verði eigi skipuð fprr en kosið hefir verið til alþingis af nýju. Að þessu loknu var fundi slitið. Síðar um kveldið áttu margir fulltrúar með sér einkafund í tjaldi Landvarnar- manna. Var þar enn rætt um samtök fundarmanna til fylgis tillögum þeim, er gerðar höfðu verið. Kom alt vel ásamt með mönnum. Skiidust allir glaðir og gunnreifir, harðla ánægðir um úrslit fundarins. Bjarni hafði átt mjög mikinn þátt að samþyktum fundarins, enda var hann í tillögunefndinni og hafði einnig látið mjög til sín taka á fundi, er fulltrúarnir áttu með sér í Bárubúð í Reykjavík kveldið áður til undir- búnings, allir þeir, er þá vóru staddir .í bænum og til náðist. Undi hann og ið bezta við fundinn og úrslit hans, enda mátti vel vera sigri hrósandi. Þingvallafundurinn var stórum merkilegur atburður í. sjálfstæðisbaráttu Islendinga. Þar kom fullkomlega fram árangurinn af barátta Landvarnarmanna frá því er flokk- urinn hófst. Hér vóru staðfestar og í fastar skorður færðar kröfur þær, er fram höfðu komið á allflestum þingmálafundum um vorið um alt land, þar á meðal í kaupstöðunum öllum — og gengið höfðu með sjálfstæð- iskröfunum, en gegn andróðri stjórnarinnar og hennar fylgismanna. Mest var um það vert, að nú hafði Land- varnarflokkurinn, Þjóðræðisflokkurinn og Heimastjórnar- menn, allur sá hlufi, er »Þjóðólfi« fylgdi að málum, tekið höndum saman um fullkomnar og fastákveðnar kröfur fyrir þjóðarinnar hönd, er alls eigi skyldi frá víkja.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Andvari

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.