Vikan


Vikan - 07.12.1972, Page 16

Vikan - 07.12.1972, Page 16
Viltu breyta jólahaldinu? Bráðum koma blessuð jólin, og þau verða vafalaust haldin á sama hátt og síðasta Hér veltum við ofurlítið fyrir okkur jólahaldi fyrr og nú, og á næstu opnu leggjum við eftirfarandi spurningu fyrir nokkra ágæta karla og konur: Hvað finnst þér um nútíma jólahald, og hverju mundirðu vilja breyta? »11111111 WímíMmm Hvað eru jólin gömul? spurði lítill drengur móður sína. Og eins og svo oft vill bregða við, átti mamma ekki óyggj- andi svar í fórum sín- um. Sumir kynnu að svara þessari spurningu þannig, að jólin væru 1972 ára gömul, þar sem kristinna manna jól eru haldin til að minnast fæðingu frelsarans. En jól voru haldin heims um ból, löngu áður en Jesús Kristur fæddist, og það var raunar ekki fyrr en ein- hvern tíma á 5. öld, sem sam- þykkt var á kirkjuþingum, að Jesús Kristur hefði fæðzt 25. desember. Sólhvörfin munu hafa verið frumorsök hinna fornu jóla. Heiðingjar fögnuðu fæðingu sólarinnar með því að kveikja elda henni til dýrðar um jóla- leytið. Kristnir menn tóku gjarnan þátt í gleðileikum og veizluhöldum heiðinna manna um jólin, og það var ofur eðli- legt, að kirkjan vildi hamla gegn slíkri spillingu. Bezta leiðin var vitaskuld að gera þessa eldfornu hátíð að krist- inni hátíð. Margir halda því fram, að' ennþá eimi eftir af þessu heiðna jólahaldi, og margir halda því einnig fram, að boðskapur jólanna týnist með öllu í því umbúðamikla jólahaldi, sem nú tíðkast. Jólasiðir eru margir og marg- víslegir, og yrði of langt mál að gera þeim góð skil hér. En allt frá tímum hinna heiðnu jóla og fram á þennan dag hef- ur jólahald að miklu leyti ver- ið fólgið í tilbreytingu í mat og drykk og því meiri ljósa- hátíð, sem norðar dregur og vetrarmyrkrið verður svartara. Við skulum rétt líta á, hvað séra Jónas Jónasson frá Hrafnagili segir okkur um jólahald íslendinga á síðari öldum í bók sinni um íslenzka þjóðhætti: „Jólanóttin var ársins helg- asta stund í augum almennings og er það enn í dag. Þá var víða siður og er sums staðar enn að kveikja ljós um allan bæinn, svo að hvergi beri skugga á, þegar búið var að sópa hann allan, og gekk þá húsfreyja kringum bæinn og um hann, „bauð álfum heim“ og sagði: „komi þeir, sem koma vilja, veri þeir, sem vera vilja, fari þeir, sem fara vilja, mér og mínum að meina- lausu“. Og enn segir séra Jónas: „Sérstaklega voru jólin og eru enn hátíð fyrir börnin. Þá var nú bæði, að þau fengu góða fylli sína að borða, en svo hef- ur það verið gamall siður á ís- landi að gefa þeim kerti. En kertaljósin voru dýrindisljós, á meðan lýsislamparnir og grút- arkolurnar voru aðalljósin á bæjunum. Víða var líka öllu fólkinu gefið sitt kertið hverj- um, var þá ekki lítið um dýrð- ir, þegar mörg börn kveiktu hvert á sínu kerti, og brá svo ljósbjarmanum um alla bað- stofuna. En annað þurftu þau líka að fá, ef vel átti að fara, — þau þurftu endilega að fá einhverja flík á jólunum, því að annars „fóru þau í jólakött- inn“ eða „klæddu jólaköttinn“.“ Nútíma fólki er gjarnt að átelja húsmæður fyrir hrein- gerningaæði fyrir jólin og virð- ist jafnvel halda þetta nýtil- komna siði. Svo er þó langt í frá, þetta eru einmitt leifar af gömlum siðum. Sá er bara munurinn, að í gamla daga var þeirra virkilega þörf. Nú á tím- um eru híbýli manna yfirleitt hreinleg, og sér lítinn mun á, þótt húsmóðirin striti dögum saman við hreingerningar fyr- ir jólin. Og það er önnur öld- in núna en þegar fólk varð að vonast eftir góðum þurrki á fötin sín fyrir jólin, svokölluð- um fátækraþerri, því að al- menningur átti e. t. v. ekki til skiptanna. Sama máli gegnir um mat- artilbúninginn og kökubakst- urinn, sem húsmæðurnar ætla sumar hverjar hreint að drepa sig á fyrir jólin. Miðað við að- stæður var ekki minna í lagt hér fyrr á árum. Var þá skömmtulag hvergi skorið við nögl, og þótti lélega skammt- að, ef menn áttu létt með að ljúka sínum skerfi. Þá var líka til siðs að setja mat fyrir huldu- fólk og álfa. Og í þá daga var það virkilega hátíð að fá laufa- brauð og jólabrauð og nýbak- aðar lummur, en nú gildir nánast einu, hvort öll herleg- heitin eru árangur margra klukkustunda vinnu í einka- eldhúsi eða keypt í næstu brauðbúð. Það er umhugsunar- vert, að nú til dags er fóik í vandræðum með að kaupa í hátíðamatinn, af því að það er svo góðu vant frá degi til dags. Það er einnig umhugsunar- vert, hvernig drykkjusiðir hafa breytzt í sambandi við jólin. Áður fyrr var oft lagt út í tví- sýnu og harðræði til þess að sækja á jólakútinn. Virðist hafa verið algengt, að menn smökkuðu áfengi á jólum, enda var þá nokkur tilbreyting að fá sér í staupinu. Nú hefur þetta snúizt við. Nú þykir það fremur tilbreyting að bragða ekki áfengi á jólum, a. m. k. ekki á sjálfa jólanóttina. Nútíma jólasveinum svipar heldur ekki ýkja mikið til gömlu íslenzku jólasveinanna, og er hætt við, að prúðbúnum börnum á jólaballi í Glaumbæ 16 VIKAN JÓLABLAÐ
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.