Menntamál - 01.06.1950, Qupperneq 70
132
MENNTAMÁL
sér heimild fyrir ríkisstjórnina að greiða uppbætur á laun
opinberra starfsmanna, ef rannsókn leiddi í ljós réttmæti
þess miðað við aðrar launastéttir í landinu.
Að lokinni athugun, er ríkisstjórnin lét framkvæma í
júní s. 1. sumar, ákvað þáverandi ríkisstjórn að nota heim-
ildina. Uppbót var síðan greidd ríkisstarfsmönnum frá 1.
júlí 1949, sem nam 20% á mánaðarlaun.
í lok ársins heimilaði Alþingi á ný, að haldið skyldi áfram
uppbótargreiðslum, annað hvort þar til ný launalög hefðu
verið samþykkt eða uppbætur væru teknar inn í fjárlög
fyrir árið 1950, og hafa þær ríkisstjórnir, er setið hafa
að völdum síðan, notað heimildina og greitt 20% uppbót
í jan. og febr., og síðan 15% til þessa, og hefur þess verið
jafnframt getið, að uppbætur þessar væru greiddar upp
í væntanlegar launahækkanir, er samþykktar yrðu, annað
hvort með gildistöku nýrra launalaga eða nýrrar heimild-
ar, er afgreidd væri í sambandi við afgreiðslu fjárlaga
árið 1950.
Um endurskoðun launalaganna skal þetta tekið fram.
í sama mund og heimild fékkst í þinginu fyrir uppbótar-
greiðslum lofaði ríkisstjórnin trúnaðarmönnum banda-
langsins, að skipuð skyldi nefnd til að endurskoða launa-
lögin frá 1945, og var nefndin skipuð af ráðuneyti Stefáns
Jóh. Stefánssonar í október s. 1.
Nefnd þessi átti samkvæmt erindisbréfi, er henni hafði
verið sent „að gera yfirlit um kaup og kjör starfsmanna
ríkisins annars vegar og annarra stétta hins vegar, og sé
þar tekið tillit til aðstöðu allrar að því er snertir atvinnu-
öryggi, eftirlaunarétt o. s. frv. Skulu um þessar rannsóknir
höfð samráð við hagstofuna að því er þurfa þykir. Skal
nefndin gera þær tillögur af þessu tilefni, er hún telur
ástæðu til“, eins og það er orðað í erindisbréfinu.
Launanefndin hefur nú samið nýtt frumvarp til launa-
laga, og hefur hún þegar gert ríkisstjórn grein fyrir niður-
stöðum sínum, en þær eru í aðalatriðum sem hér segir: