Menntamál - 01.06.1950, Síða 82
144 MENNTAMÁL
tungurnar, heldur er því ætlað að verða annað tungumál
allra manna.
Esperantó getur í sjálfu sér ekki komið í veg fyrir
styrjaldir, en það er öflugut tæki til þess að auka skiln-
ing milli þjóða og stuðlar efalaust að því að skapa alþjóð-
legan anda.
Esperandtó er raunveruleiki. Um það má taka upp orð
eftir franska tungumálafræðinginn Meillet, en hann sagði:
„Esperantó er í fullum gangi. Allar fræðilegar bollalegg-
ingar eru óþarfar“.“
Ólafur Þ. Kristjánsson.
Frá kennarasamtökunum.
Fulltrúaþing S. f. B. verður háð í Reykjavík á þessu vori. Verður það
sett 20. júní í Melaskólanum, þar sem það verður til húsa.
Til umræðu á þinginu verða mörg mál svo sem framkvæmd fræðslu-
laganna, launamál og lagabreytingar. Þá mun dr. Matthías Jónasson
flytja erindi um rannsóknir sínar, Guðjón Guðjónsson skólastjóri um
hvildarheimili aldraðra kennara, og forseti sambandsins, Ingimar Jóhannes-
son, mun vekja máls á samningu æviskráa barnakennara.
Enn fremur fer fram kjör á nýrri sambandsstjórn. Núverandi stjórn er
þannig skipuð: Ingimar Jóhannesson, form., Guðm. í. Guðjónsson, ritari,
Pálmi Jósefsson, gjaldkeri, meðstjórnendur: Arngrímur Kristjánsson vara-
form., Árni Þórðarson, Guðjón Guðjónsson og Jónas B. Jónsson.
Ingimar Jóhannesson og Jónas B. Jónsson verða ekki í kjöri við þessar
kosningar, þar eð þeir eru nú á aukaskrá sambandsins.
ÚTGEFANDI: SAMBAND ÍSLENZKRA BARNAKENNARA OG
LANDSSAMBAND FRAMHALDSSKÓLAKENNARA.
Útgáfustjórn:
Armann Halldórsson ritstj., Helgi Þorláksson og Jón Kristgeirsson.
Afgreiðslumaður: Þórður J. Pálsson,