Menntamál - 01.04.1960, Qupperneq 38
24
MENNTAMÁL
við skólana. Stjórn safnanna er valin af bæjarstjórn.
Fræðslustjóri og tveir kennarar, sem valdir eru af kenn-
arasamtökunum, sitja fundi. (Ekki bókaverðir). Bóka-
vörður miðsafns starfar sem ritari. Barna- og skólabóka-
söfnin lúta yfirstjórn fræðslustjóra og bókavarðar mið-
safns.
Undir hann falla hin bókfræðilegu störf. Skólabóka-
söfnin eru í umsjón kennara, sem þá jafnframt eru bóka-
verðir viðkomandi skóla. Bókaverðir eru ráðnir samkvæmt
tillögu fræðslustjóra, en skólastjóri viðkomandi skóla hef-
ur þar tillögurétt.
Til þess að hljóta skipun sem bókavörður, þarf viðkom-
andi kennari, að hafa sótt námskeið, sem árlega er hald-
ið við Kennaraháskólann, eða skuldbinda sig til þess að
gera það. Slík námskeið eru haldin í tvennu lagi, annað í
einn mánuð að haustinu, en hitt stendur yfir allan vetur-
inn, með sama tímafjölda, en fáum tímum á viku. Er hið
styttra ætlað þeim, er starfa utan Kaupmannahafnar.
Bókafulltrúi, sem venjulega er einn af bókavörðum
skólanna, hefur á hendi yfirumsjón bókasafna allra skól-
anna.
Nefnd, skipuð aðalbókaverði, bókafulltúa, yfirbókaverði
barnabólcasafnanna og tveimur bókavörðum frá skólun-
um, annast val þeirra bóka, er söfnin kaupa.
í Danmörku kynntist ég mörgum mönnum, sem hafa
með höndum skólabókasöfn og þeirra mál. Samkvæmt við-
tölum við þá virtist mér það almennast álit, að skólabóka-
söfnin hafi það mikla sérstöðu, að þau eigi að öllu leyti
að lúta skólayfirvöldum, en ekki að vera í tengslum við
sveita- eða bæjabókasöfn, enda er stefnt að því að svo
verði. Vinna samtök skólamanna þar í landi markvisst að
því að rjúfa þau tengsl, sem hafa verið síðan árið 1949
milli skólabókasafna og almenningsbókasafna, á þeim for-
sendum, sem ég hef áður tekið fram.
Um lesstofur skólanna vil ég taka fram eftirfarandi: