Menntamál - 01.04.1960, Side 40
26
MENNTAMÁL
Safnið er í mörgum deildum. Þar gefur að líta fjöl-
þætt kennsluáhöld, auk skólavinnu varðandi bóklegt og
verklegt nám. Þar er mikið bókasafn. Safnið gefur öðru
hverju út skrár yfir uppeldis- og kennslufræðileg rit, sem
því berast. Mér gafst kostur á því að kynnast þessu safni
nokkuð, vegna þess að ég sótti námskeið, sem þar var til
húsa.
Hér á landi vantar tilfinnanlega skólasafn, sem byggt
væri upp á svipaðan hátt. Einhver vísir mun vera hér til
að kennslufræðilegu bókasafni.
Árlega koma út á Norðurlöndum bækur, sem fengur er
að í slíkt safn, en ekki margar. Það svarar varla kostnaði
að kaupa mikið af erlendum kennslubókum, þær úreldast
fljótt og ætti að vera hægt að fá þær með öðrum hætti.
Skólasafn gefur yfirlit yfir ástand skólamálanna, eins
og þau eru á hverjum tíma, varðandi bókakost, kennslu-
áhöld og skólavinnu, og er því mikils virði þeim mönnum,
sem við slík mál fást og stuðlar að aukinni skólamenningu
í landinu.
Ég gat þess í upphafi máls míns, að skólabókasafnið
greindist í þrjár deildir. Mun ég nú víkja að þeirri flokk-
un nánar.
Bókasafn í lesstofu er vitanlega staðbundið. Þangað
koma börn, sem hafa áhuga á því að færa sér í nyt það,
sem safnið hefur að bjóða. Önnur koma til þess að eyða
tímanum. Þau eru þá, ef til vill, að bíða eftir félögum sín-
um eða hafa þá stundina ekki annan heppilegri dvalar-
stað. Báðum þessum ólíku hópum verður bókavörðurinn
að sinna, og tekst oftast vonum framar að finna bækur,
sem henta hinum síðar nefndu, en oft er það ekki fyrir-
hafnarlaust.
Safn til útlána er ekki á vegum skólanna nema að nokkru
leyti. Bækurnar tilheyra yfirleitt almenningsbókasafni,
en útlán fara hins vegar oftast fram á vegum viðkomandi
skóla.