Menntamál - 01.04.1960, Page 67
menntamál
53
„Undur Guðs var yfir mér
og allt umhverfis mig".
Minningarorð Kurts Zier, skólastjóra, við jarðarför
Dr. Heinz Edelstein í Odenwald, 8. okt. 1959.
Þorsteinn Valdimarsson þýddi á íslenzku.
Uppskeruhátíðin var ein-
mitt nýgengin um garð,
þegar hinn mikli sláttu-
maður reiddi að okkur sigð
sína enn einu sinni og hreif
úr hópnum þann sem okkur
varði sízt, Heinz Edelstein.
Heinz Edelstein er fædd-
ur í Bonn, 5. júní 1902.
Faðir hans, dr. Emanuel
Edelstein, var þar mikils-
virtur læknir. Hann gekk í
menntaskóla í fæðingar-
borg sinni, og að loknu
stúdentsprófi hélt hann
áfram námi við háskólana
í Bonn, Freiburg og Berlín. Df Heinz Edchtein + 5. okL 1959_
Aðalnámsgreinar hans
voru tónlist, listasaga og heimspeki. Um skeið var Feuer-
mann kennari hans í sellóleik. Það voru þessi námsár, full af
vonum, fyrirætlunum, miklum hugmyndum og umfram
allt brennandi spurningum, sem hinn fullorðni maður
minntist síðar í fjarlægu landi með orðum Jobs: Ó, að