Menntamál - 01.04.1960, Page 88
74
MENNTAMÁL
Uppeldismálaþing S. í. B. og L. S. F. K.
Á ellefta uppeldismálaþingi Sambands íslenzkra barnakennara og
Landssambands framhaldsskólakennara 12. til 14. júní 1959 var rætt
um geðvernd barna og unglinga og landafræðinám. í fyrra málinu var
gerð eftirfarandi samþykkt:
Ellefta uppeldismálaþing S. í. B. og L. S. F. K., lialdið í Reykjavík
í júní 1959, skorar á menntamálaráðherra að beita sér hið fyrsta fyrir
því, að komið verði á sálfræðilegri þjónustu fyrir barna- og unglinga-
skóla í landinu. Lýsir þingið eindregnum stuðningi við tillögur þær
um skipan sálfræðilegrar þjónustu í skólum, sem Félag íslenzkra sál-
fræðinga liefur lagt fyrir uppeldismálaþingið og sendar hafa verið
menntamálaráðherra. Ennfremur telur þingið brýna nauðsyn, að
almenn geðverndarstarfsemi verði tekin upp meðal barna innan skóla-
skyldualdurs.
Greinargerð.
í landinu eru nú hér um bil 26 þúsund börn og unglingar á fræðslu-
skyldualdri. í slíkum fjölda koma fram margvísleg vandamál, sem sál-
fræðilega leiðsögu þarf til að leysa, ef þau eiga ekki að há barninu í
námi og verða hættuleg félagslegri aðlögun þess og geðheilbrigði.
Vísindaleg uppeldisfræðiþekking hefur um langt skeið verið hagnýtt
x skólastarfi nágrannalanda okkar og þykir ómissandi. Um þörf stór-
aukinnar þjónustu af þessu tagi hér á landi munu nú allir sammála,
sem að kennslu- og uppeldismálum starfa, eins og ítrekaðar samþykktir
kennaraþinga á undanförnum árum staðfesta glögglega. Þjóðlífsbreyt-
ingar síðustu ára valda því, að mikil þörf er á uppeldislegu leiðbein-
ingarstarfi fyrir foreldra, og einnig meðal þeirra verða kröfur um þjón-
ustu af þessu tagi stöðugt ákveðnari.
Þá var samþykkt á þinginu allýtarleg áætlun um landafræðinám.
Þingið taldi æskilegt að auka starfræna kennslu í landafræði og hlið-
stæðum námsgreinum. Rætt var um nauðsyn á sérstakri þjálfun kenn-
araefna og óskað námsskeiða fyrir starfandi kennara í þessum kennslu-
aðferðum. Ennfremur taldi þingið þörf hentugra kennslubóka og
ýrnissa hjálpargagna við landafræðikennslu.
Auk þessara tveggja höfuðviðfangsefna þingsins gerði það samjrykktir
um ýniis önnur mál, meðal annars þær, sem hér fara á eftir:
Ellefta uppeldismálaþing S. í. B. og L. S. F. K. telur nauðsynlegt,
að við sem flesta barnaskóla starfi að minnsta kosti einn kennari,
sem hafi sérstaklega kynnt sér kennslu afbrigðilegra barna. En þar
sem kennarar með sérmenntun á þessu sviði munu vera fáir hérlendis,
skorar þingið á fræðslumálastjórn að efna til námsskeiðs Jxegar í
haust fyrir kennara, sem vilja kynna sér slíka kennslu.