Æskan - 01.10.1974, Blaðsíða 78
Vfirstjórn Pósts og sima er í höndum símamálastjóra og heyrir beint undir
samgöngumálaráðuneytið.
Stofnunin greinist f fjórar aðaldeildir: hagdeild, radiótæknideild, rekstrar-
deild og símatæknideild. Auk þess greinist starfsemin f fjórar sérdeildir: Aðal-
póststofan í Reykjavík annast rekstur póststofa í Reykjavík og nágrenni, Bæjar-
síminn í Reykjavík annast rekstur símans á höfuðborgarsvæðinu og verklegar
framkvæmdir hans, Póstgíróstofan annast gíróstarfseml, sem hófst 1971 og
loks er Ritsíma- og ianglínumiðstöðin í Reykjavík.
Saga póstskipulags á íslandi hefst með tilskipun um póstmál 26. febrúar
1872 og árið 1873 var fyrsta íslenska frímerkið gefið út. Þróun póstflutninga
hefur verið einstaklega ör síðustu öld og haldist í hendur við þróun samgöngu-
tækja f víðtækustu merkingu.
Sæsiminn var opnaður 25. ágúst 1906 með skeytasendingu milii Seyðis-
fjarðar og Danmerkur. Rúmum mánuði siðar var lagningu innanlandslínunnar
lokið og skeytasamband milli Reykjavikur og útlanda opnað.
Loftskeytastöð var tekin í notkun í Reykjavík árið 1918 og úr þvf farið að
búa skip radíótækjum. 1963 var stöðin flutt að Gufunesi og þjónar nú bæði
skipum, bifreiðum og flugvélum.
Árið 1929 var búið að tengja sima kringum landið. 1935 var opnað þráðlaust
talsamband við útlönd. Endurlagningu sæsíma frá Skotlandi til Islands og
áfram til Græniands og Kanadajauk 1962.
Eftir heimsstyrjöldina hafa orðið stórstígar framfarir í síma- og radfóþjónustu.
Meginverkefni símans hin síðari ár hefur verið að gera simakerfið sjálfvirkt. Um
90,2% númeranna eru nú f sjálfvirku kerfi.
Skipaútgerð
ríkisins
Skipaútgerð ríkisins var stofnuð við árslok 1929 til þess að annast útgerð
strandferðaskipa, varðskipa og vitaskips rfkisins.
Sterling var fyrsta strandferðaskipið, sem,ríkið átti og gerði út beinlfnis til
strandsiglinga. Sterling fórst 1922, en við tók Esja 1923—38 (sérbyggð til
strandferða) og eftir stofnun Skipaútgerðar ríkisins bættist Súðin við og var
gerð út frá 1930—48.
Meginverkefni Skipaútgerðar ríkisins var hagstæðari rekstur vaxandi skipa-
kosts ríkisins, flutningaþjónusta við hinar dreifðu byggðir, gæsla landhelg-
innar og björgunarstörf f þágu fiskiskipa og annarra skipa við landið.
Sérstakur forstjóri var skipaður fyrir iandhelgisgæsluna 1952, en reiknings-
haldið o. fl. er enn hjá Skipaútgerðinni ásamt svipaðrl þjónustu í þágu haf-
rannsóknaskipa frá 1969.
Strandferðaþjónusta Skipaútgerðarinnar hefur frá upphafi verið nokkuð breyti'
leg eftir skipakosti, árferði o. fl., að ógleymdri heimsstyrjöldinni 1939—1945,
þegar strandsiglingar millilandaskipa lögðust nær alveg niður.