Æskan

Árgangur

Æskan - 01.01.1975, Blaðsíða 36

Æskan - 01.01.1975, Blaðsíða 36
Skáktaflið er orðin gömul fþrótt. Menn vita með vissu, að það var iðkað f Ind- landi og Persíu á 7. öld, og máski fyrr. Það er og hefur alltaf verið orusta, þar sem tveir jafnsterkir herir eigast við. Uþphaflega var mönnum raðað á tafl- borðið Ifkt og fylkingaskipan var þá f indverskum her. Hver taflmaður hafði á að skipa 8 fótgönguliðsmönnum, og að baki þeirra voru 8 liðsforingjar, en að baki þeim voru konungurinn og ráðgjafi hans, og voru þeir varðir til beggja handa af fílum, hestum og strfðsvögn- um. Hið merkasta við taflið er að tilgang- urinn er ekki sá að uppræta algerlega her óvinarins, heldur að knýja konung- inn til uppgjafar. Konungur bfður ósigur þótt hann hafi meira liði á að skipa en hinn, ef hann kemst f sjálfheldu. I hvert Skák Skáktaflið uppruni þess og breytingar sinn er konungur er f hættu, er skák, en þegar hættan steðjar að á alia vegu og hann getur ekki hreyft sig, þá er mát. Þessi tvö orð, skák og mát, eru komin úr persnesku, en þar þýðir „shah mat": konungurinn er dáinn. Ýmsar sagnir eru um það, hvernig skáktaflið hafi verið fundið upp. Ein af þeim er á þessa leið: Tveir indverskir prinsar börðust einu sinni til rfkis. Þeir voru hálfbræður, sam- mæðra. Þeir hétu Taikland og Gau. Talk- land var herskár og grimmur, og hann hafði gert uppreisn gegn bróður sfnum. En Gau var friðsamur maður og góð- gjarn og hann gaf út þá skipun, að eng- inn mætti vinna bróður sfnum mein f orustu. Samt fór nú svo, að Talkland féll. Her Gaus hafði umkringt hann, og hann fannst dauður f valnum. 34

x

Æskan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.